Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Hemúllinn: „Sigmundur Davíð, hvar er peningurinn þinn?“

$
0
0

„Ég er frekar rólegur gaur en núna er ég brjálaður,“ segir Arnar Snæberg, betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Hemúllinn, þegar hann stígur af sviði á mótmælafundi mánudagsins 4. apríl.
Arnar Snæberg er verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg og þriggja barna fjölskyldufaðir en á sér hliðarsjálf, tónlistarmanninn Hemúlinn sem þekktur er fyrir slagara á borð við „Menn í einkennisbúningum“, „Þvílík firra, þvílík fórn! Þett’er vanhæf ríkisstjórn!“ og „Sigmundur Davíð hvar er peningurinn minn?“.
Á mótmælunum breytti hann því síðastnefnda þó svo textinn væri í samræmi við nýliðna atburði: „Sigmundur Davíð hvar er peningurinn ÞINN“.
Orkan og reiðin streymdi frá Hemúlnum, en Arnar segist sjálfur ólíkur Hemúlnum að flestu leyti. „Mér dettur til dæmis aldrei í hug að láta fólk heyra það eða neitt, en Hemúllinn sér um það.“ Hemúllinn sé þó óhræddur við það, enda hatar hann fávita, að sögn Arnars: „Hvort sem það eru fávitar í pólitík, þeir sem leggja í fatlaðrastæði eða rasistar.“

25820_Hemllinn_Arnar_Snaeberg_Jonsson-1
Arnar segist vonast til að ekki verði þörf á að flytja “Sigmundur Davíð, hvar er peningurinn minn?” aftur eftir þessa viðburðaríku viku. Mynd|Rut

Arnar heldur á trépriki og á enda þess er tálguð hönd sem vel að merkja heldur miðjufingrinum uppi. Hann tálgaði hana hins vegar ekki sjálfur heldur fundu börnin hans höndina uppi undir súð á heimili þeirra í Hafnarfirði. Prikið á þó vel við hér á Austurvelli og skekur Hemúllinn það í átt að Alþingi milli þess sem hann hrópar „Vanhæf ríkisstjórn!“ með fjöldanum.

Hemúllinn á langan feril að baki, en hann leit fyrst dagsins ljós árið 2001. „Hemúllinn varð til þegar ég barðist við þunglyndiseinkenni,“ segir hinn 38 ára gamli Arnar, sem er frá Hólmavík og flutti fyrst til Reykjavíkur fyrir þremur árum. Hemúllinn gerir alla sína tónlist í Guitar Pro, forrit sem hann stal á netinu og er að hans sögn alls ekki ætlað til tónlistarsköpunar. „Ég kann bara ekki á nein tónlistarforrit, þess vegna er svolítið fyndið að ég búi til raftónlist.“
Tónlistin hefur þó breyst mikið á 15 ára ferli. „Til að byrja með voru lögin poppaðri tónlist og textar, en með aldrinum varð ég reiðari og textarnir breyttust í samræmi við það.“

Arnar hefur vakið athygli fyrir textasmíð sína annars staðar en á sviði, en Hemúllinn sótti, sem dæmi, eitt sinn um vinnu hjá Smartlandi með pönkljóði sem fór sem eldur um sinu í netheimum.
Arnar segir áætlan Hemúlsins einfaldlega að vera alltaf á móti og segir Hemúlnum slétt sama um hvort fólk fíli sig eða ekki. „Ef Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki ráða þig ertu ekki að gera neitt rangt. Það er mikilvægara að vera trúr sjálfum sér en að fá gigg.“

Nú er Hemúllinn í fyrsta sinn á leið í stúdíó, þvert á upprunalega stefnu sína um að gefa aldrei út eitt einasta lag. „Ég klúðraði eigin stefnu og lofaði á Facebook að ef ég fengi 1000 læk gæfi ég út efni. Sem er vandamál því Hemúllinn svínvirkar á sviði en drepst alveg í stúdíói.“

Áður en hann kom fram á mótmælafundinum á Austurvelli var Hemúllinn í ótímabundnu tónleikahléi. Næst mun hann koma fram á Norðanpaunks-hátíðinni í sumar auk annarra gigga, sjái hann sig ekki knúinn til að ausa úr skálum reiði sinnar á frekari mótmælafundum í millitíðinni.
„Hemúllinn er ómengaður og tær pirringur og ég held að það sé það sem fólki fíli við þetta. Stundum er betra að öskra um hlutina í stað þess að röfla um þá, og það er það sem fólk langar í raun til að gera.“

25820_Hemllinn_Arnar_Snaeberg_Jonsson-11
Hemúllinn fann þetta eftirtektarverða prik uppi á lofti hjá sér. Mynd|Rut

 

The post Hemúllinn: „Sigmundur Davíð, hvar er peningurinn þinn?“ appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652