Benni, Þorri, Þóra og Hanna Guðrún settust niður og veltu fyrir sér hinum ýmsu gömlu og nýju orðum.

Benjamín Gunnar Valdimarsson, 7 ára
Afruglari : Ég hef aldrei heyrt þetta áður. Kannski að maður sé alltaf ruglaður en gleymir því aldrei að maður sé ruglaður?
Vídeóleiga : Þá fer maður svona inn á sjónvarpið og þar getur maður leigt allskonar myndir. Ég hef oft gert það.
Loftnet : Það er gervihnöttur út í geim sem sendir á stöð lengst í burtu og það er stór hnöttur sem dreifir þessu yfir öll „system“ og í sjónvarpið.
Selfie : Þegar maður tekur mynd af sjálfum sér.
Fössari : Ég hef aldrei heyrt þetta, hef ekki hugmynd.
Hipster : Hypjaðu þig burt?
Bankahrun : Það er þegar peningar hrynja inn í bankann.

Þorri Ingólfsson, 6 ára
Afruglari : Hmm, að vera alveg ruglaður?
Vídeóleiga : Leigja mynd í sjónvarpinu.
Loftnet : Til að horfa á sjónvarpið, stundum upp á þaki, eða svona yfirleitt.
Selfie : Ég veit ekki hvað það þýðir.
Fössari : Föstudagur!
Hipster : Að vera heimsmeistari.
Bankahrun : Ég held það þýði að steinar séu að hrynja.

Þóra Marín Sigmundsdóttir, 4 ára
Afruglari : Það er dós.
Vídeóleiga : Það er í sjónvarpinu, til að horfa á mynd.
Loftnet : Það er svona dót í loftinu.
Fössari : Það er byssa.
Selfie : Að taka mynd af sér.
Hipster : Það er svona tónlist.
Bankahrun : Ég held það séu peningar.

Hanna Guðrún Ingólfsdóttir, 4 ára
Afruglari : Að vera rugludallur.
Vídeóleiga : Svona vídeó eins og bróðir minn leigir í tölvunni.
Loftnet : Ég veit ekki.
Selfie : Ég veit ekki alveg en það er svolítið eins og selur.
Fössari : Það er held ég föstudagur.
Hipster : Ég veit ekki alveg.
Bankahrun : Banki?
The post Hvað þýða þessi orð? appeared first on Fréttatíminn.