Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Hugsaðu vel um pallinn

$
0
0

-Byrjið á því að sópa vel og taka allt af pallinum.

-Skoðið allar skrúfur og nagla vel, skiptið um þá sem eru ryðgaðir eða fúnir.

-Hreinsið pallinn vel, hægt er að nota viðarhreinsi og skrúbba vel með bursta með stífum hárum.

-Látið pallinn þorna alveg ef þið ætlið að lakka hann eða bera á hann viðarvörn.

-Pússið yfirborðið með sandpappír og sópið vel áður en þið hefjist handa við að bera á pallinn.

25865-jurtir

-Passið ykkur að vera með hanska og klút fyrir vitum þegar þið eruð að nota lakk eða önnur sterk efni.

-Ekki gleyma að skoða veðurspána áður en þið hefjist handa. Það er vont að það byrji að rigna á blautt lakk eða viðarvörn.

Þegar þú hefur gert pallinn hreinan og fínan má fara að huga að því hvernig þú ætlar að nýta hann í sumar. Grillið á væntanlega sinn stað sem og garðhúsgögnin. Það er um að gera að nota hugmyndaflugið til þess að gera pallinn að einstökum griðastað.

-Hafið nóg af lifandi blómum og leyfið jafnvel börnunum að planta í eigin blómapott og leyfið þeim að sjá um þau sjálf.

-Útbúið kryddjurtakassa.

-Notið vörubretti til þess að búa til sófa eða jafnvel lítið eldstæði. Pinterest er uppfullt af frábærum hugmyndum hvernig má nota vörubretti.

-Hengirúm eru alltaf skemmtileg og það má einnig nota Pinterest til þess að finna góða útfærslu á þeim.

The post Hugsaðu vel um pallinn appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652