Það er ekki sjálfgefið að nýbakaðir foreldrar tengist börnum sínum tilfinningaböndum. Þvert á móti eru að minnsta kosti 250 konur á landinu sem þurfa stuðning til að læra að elska ungbörnin sín og setja þarfir þeirra ofar sínum eigin. „Það er hægt, en tekur tíma,“ segir Gunnlaug Thorlacius félagsráðgjafi.
„Fólk er ekki alltaf sammála um hvar mörkin liggja og hvenær barn telst vanrækt. Við lítum svo á að barn sem ekki fær tilfinningalega næringu sé vanrækt. Jafnvel þó það fái mat, húsaskjól og alla þá veraldlegu hluti sem það þarfnast. Tilfinningalega vanrækt börn geta hugsanlega verið í hættu. Fjölmargar rannsóknir sýna að skortur á nánum tilfinningatengslum aftrar þroska og hefur víðtæk áhrif á framtíð þeirra.“ Þetta segir Gunnlaug Thorlacius félagsráðgjafi sem er einn af sérfræðingunum sem mynda teymið FMB, foreldrar – meðganga – barn.
Það þykir nokkuð framúrstefnuleg geðheilbrigðisþjónusta og er afsprengi samvinnu geðsviðs og kvennadeildar Landspítalans. FMB er fyrir foreldra sem glíma við alvarlegan geðheilsu- eða tengslavanda. Þeir sem þiggja þjónustuna eru oftast nýbakaðar mæður sem þurfa stuðning við fyrstu skrefin í nýju hlutverki. Flestar þeirra eru með þungan farangur á bakinu, svo sem geðraskanir, fíknivanda, félagslegan vanda eða fjölþætt vandamál. Reynt er að veita allri fjölskyldunni meðferð þar sem barnið er í forgrunni en báðir foreldrar koma að samtalinu.

„Almennar rannsóknir sýna að ef gripið er inn í á fyrstu þúsund dögum barnsins, og hægt er að ná upp meðferðarsambandi, þá getum við vænst þess að það skili góðum árangri. Það er hinsvegar aldrei of seint að hefja meðferð,“ segir Gunnlaug.
Álag að eiga veika móður
Í teyminu er ólík reynsla sérfræðinga af líðan kvenna í barnseignarferli. Sérfræðingarnir, sem allt eru konur, hafa sameinað krafta sína í þróun þessa meðferðarúrræðis sem er með öllu ókeypis, enda skilgreint sem þjónusta við börn.
„Það er álag fyrir barn að eiga veika móður. Ef móðurinni líður illa getur barnið legið baðað í streituhormónum í móðurkviði. Framleiðsla streituhormónanna getur haldið áfram eftir að barnið fæðist, ef það á í tilfinningalega flóknu sambandi við móðurina. Margar rannsóknir sýna að streita hefur langtímaáhrif á heilsufar, til dæmis svokölluð Ace-rannsókn sem lengi hefur verið gerð lengi í Bandaríkjunum. Hún sýnir bein tengsl milli áfalla í frumbernsku og heilsufars. Nú er hægt að tengja streitu í frumbernsku við sykursýki, offitu og hjartasjúkdóma.“ Gunnlaug telur þessvegna þjónustuna vera ódýra og bráðnauðsynlega forvörn til að sporna við vandamálum í lífi barnsins.
Aðspurð um hvort hægt sé að sjá einkenni á tilfinningalega vanræktum ungbörnum, segir Gunnlaug það stundum vera. „Þau geta verið með svefnvanda, óværð og næringarvanda. Algengt er að foreldrar leiti á heilsugæslustöðvar með þetta og þess vegna skiptir miklu máli að þeir séu teknir alvarlega. Að hlustað sé á þá og þeir spurðir beint út hvernig þeim líði, svo hægt sé að greina hvað raunverulega liggi að baki. Alvarlegustu tilfellin, sem eru afar sjaldgæf, lýsa sér þannig að barnið gefst upp á að eiga í samskiptum og dregur sig alfarið í hlé. Það er mjög óhugnanleg sjón. Öfgafyllstu dæmin sem upp hafa komið í heiminum, þar sem börn hafa verið algjörlega einangruð og svelt á tilfinningaleg tengsl, sýna að börnin þroskast mjög óeðlilega og hegða sér í raun eins og dýr.“
Spyrjum spurninga
Til að hjálpa mæðrum eða fjölskyldum að mynda tengsl er boðið upp á samtalsmeðferð í sérinnréttuðum hlýlegum herbergjum. Samtölin eru oftast vikulega og fara fram á gólfinu þar sem barnið er í miðjunni. „Margir þeirra sem til okkar koma upplifa barnið sem aðskotahlut í lífi sínu, að það sé krefjandi, jafnvel óþolandi. Algengt er að móðirin nái ekki að hugga barnið og finni sig ekki í hlutverkinu. Oftast veit fólk sjálft hvert vandamálið er, þegar það kemur til okkar.“
En er hægt að hjálpa til dæmis þunglyndri móður til þess að byrja að elska barnið sitt?
„Já, í langflestum tilfellum er það hægt. Það tekur mismunandi langan tíma. Við veitum engin ráð en reynum að spyrja spurninga og sýna forvitni. Við reynum að lyfta þörfum barnsins upp. Til dæmis ef móðirin segist ekki þola barnið sitt, þá spyrjum við hvað hún haldi að barninu þyki um það? Vinnan snýst því um að beina sjónum móðurinnar að tjáningu barnsins og gera hana meðvitaða um tilfinningalíf þess.“
Tengslin fæðast
Í hverju felast þá litlu sigrarnir á leiðinni að tilfinningatengslum? „Að sjá mömmu vaxa og átta sig á að hún er mikilvæg og lífsnauðsynleg fyrir barnið. Að hún finni leiðir til að næra barnið sitt tilfinningalega. Það er í raun þannig að við sjáum ástarsambandið fæðast. Það er ótrúlega magnað að sjá þegar þær verða ástfangnar af börnunum sínum. Þegar þær eru komnar á þann stað að geta brosað fram í barnið sitt, fengið bros til baka og sagt að þær elski það. Og þegar við upplifum að mamman sé fær um að setja þarfir barnsins ofar sínum og tengjast því tilfinningalegum böndum, þá getum við farið að leggja upp útskriftarplanið.“
Þeir sem vilja afla sér upplýsinga eða leita sér hjálpar hjá FMB-teyminu geta skoðað heimasíðu Landspítalans.
The post Tilfinningatengsl móður og ungabarns myndast ekki sjálfkrafa appeared first on Fréttatíminn.