Fjöldi verkamanna frá Austur-Evrópu dvelur hér við frumstæðar aðstæður til að vinna í byggingabransanum. Brotafl, sem sætir rannsókn vegna gruns um auðgunarbrot og mansal, hefur starfað víða um borgina, meðal annars við framkvæmdir vegna nýrrar fangelsisbyggingar á Hólmsheiði.
Eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og Þóru Tómasdóttur.
Byggingaverktakar sem eru til rannsóknar vegna auðgunarbrota sem nema mörg hundruðum milljóna hafa áður komið við sögu lögreglunnar. Sigurjón Halldórsson í Brotafli hefur verið dæmdur fyrir skattalagabrot og komið við sögu í lögreglumálum, þar á meðal mansalsmáli á Suðurnesjum þar sem starfsmenn hans fengu dóm.
Alls var gerð húsleit á fjórtán stöðum og lagt hald á bókhaldsgögn, tölvur og síma auk nokkurra milljóna í reiðufé. Níu voru handteknir, fimm settir í gæsluvarðhald.
Þeirra á meðal er Sigurjón Halldórsson, eigandi Brotafls, og Þórkatla Ragnarsdóttir, eiginkona hans og fjármálastjóri fyrirtækisins, auk bræðranna Róberts og Konráðs í Kraftbindingum. Þeir fengu dóm árið 2012 fyrir ræktun kannabiss en annar þeirra er tengdasonur Sigurjóns.
Þá hefur verið rætt við 20 til 30 manns vegna rannsóknarinnar. Fimmti maðurinn á ekki brotaferil að baki, en hann tengist fólkinu sem fyrr er nefnt og átti hundrað kannabisplöntur í iðnaðarhúsnæði í Höfðahverfinu.
Bull og kjaftæði
Sigurjón Halldórsson sagði í samtali við Fréttatímann að hann ætlaði að stefna lögreglunni fyrir gæsluvarðhaldið og Fréttatímanum fyrir að fjalla um málið. Þetta sé bull og kjaftæði frá upphafi til enda. Það sé verið að draga upp svarta mynd af heiðarlegu fyrirtæki. Sannleikurinn eigi eftir að koma í ljós.

Það var ríkisskattstjóri sem vakti athygli lögreglunnar á fyrirtækinu vegna gruns um brotastarfsemi sem er vel þekkt í verktakabransanum. Sigurður Jensson hjá embættinu segir að verktakafyrirtæki séu þá að gera lág tilboð í stór verk á grundvelli fyrirfram skipulagðra vanskila á opinberum gjöldum. Stundum er notuð keðja af undirverktökum, þar sem fjármunir fara upp keðjuna en reikningarnir niður. Í sumum tilfellum er það efsta fyrirtækið í keðjunni sem skipuleggur svindlið, það er þá að skila einhverjum opinberum gjöldum og kappkostar að líta vel út opinberlega.
Felur oft í sér mansal
Undirverktakarnir gefa út reikninga sem engum virðisaukaskatti er skilað af en eru engu að síður nýttir sem innskattur í bókhaldi verkkaupa. Ýmist er um að ræða algjörlega tilbúna reikninga eða svarta vinnu unna í skjóli vanskila eða sambland af hvoru tveggja. Ekki er haldið eftir staðgreiðslu, tryggingagjaldi né nokkrum öðrum lögbundum launatengdum gjöldum. Þegar síðan þrengist um eru stofnuð ný félög og háttsemi heldur áfram. Bent er á að svört vinna af þessu tagi feli en oftar en ekki í sér þvílík brot á réttindum starfsmanna og aðstæðum þeirra að það verður ekki skilgreint öðru vísi en mansal. Félagsmálaráðherra hefur sagt að það komi til greina að gera aðalverktakana ábyrga fyrir undirverktökum til að koma í veg fyrir slík brot.
Unnu við nýtt fangelsi
Fyrirtækið Brotafl hefur verið áberandi í framkvæmdum í borginni á undanförnum árum og tekið að sér mörg stór verk, til að mynda við hótelbyggingu á Laugavegi 34 til 36, á Frakkastígsreit, svo eitthvað sé talið. Það má þó segja að það sé kaldhæðni örlaganna að fyrirtækið sá um jarðvegsvinnu fyrir fyrirhugað fangelsi á Hólmsheiði.
Ríkisskattstjóri hefur rannsakað grunsemdir um brot fimm verktakafyrirtækja frá áramótum og er grunur um að skotið hafi verið undan tveimur milljörðum. Þar af eru meint brot verktakanna sem tengjast Brotafli langmest.
Sigurður Jensson hjá ríkisskattstjóra segist fagna því að lögreglan rannsaki nú málið. Þarna séu gríðarlegar hagsmunir undir, bæði almennings sem og annarra verktaka sem vilji fara að lögum. Það geti enginn keppt við þessa verktaka á eðlilegum forsendum. Þarna geti menn orðið sér úti um gríðarlega fjármuni og unnið skemmdarverk á greininni til frambúðar. Þetta sé skipulögð glæpastarfsemi sem þurfi að uppræta.
Leiguherbergi í iðnaðarhverfi
Eins og Fréttatíminn fjallaði um í síðustu viku rannsakar lögreglan hvort lög um aðbúnað á vinnustöðum hafi verið brotin, jafnvel lög um mansal. Öll vinna lá niðri hjá Kraftbindingum fyrir hádegi á mánudag þegar Fréttatíminn kom í Funahöfða 7, þar sem á þriðja tug verkamanna búa, meðan þeir starfa fyrir fyrirtækið. Þótt Funahöfði sé iðnaðarhverfi er þar að finna fleiri hús með leiguherbergjum, þar sem farandverkamenn frá Austur-Evrópu og eiturlyfjasjúklingar, langt leiddir alkóhólistar og annað fólk sem á í engin hús að venda, býr.
Hátt í tuttugu erlendir verkamenn fyrirtækisins hafa búið í Funahöfða 7, en þeir höfðu samband við pólska sendiráðið á föstudag, þegar lokað hafði verið fyrir rafmagn í húsnæðinu vegna vanskila. Starfsmaður pólska sendiráðsins segist hafa haft samband við Orkuveituna og útskýrt málavexti en þeir hafi ekki talið sig getað opnað fyrir rafmagnið þar sem reikningarnir hafi verið svo háir. Hann hafi haft samband við lögreglu sem hafi útskýrt málið og hann hafi rætt við verkamennina. Hann hafi ekki haft frekari afskipti af málinu. Hann segir að sendiráðið hafi ekki oft afskipti af pólskum verkamönnum, í fyrrahaust hafi þó komið upp mál þar sem slys varð á vinnustað og verkamaðurinn var ótryggður.
Lokað fyrir rafmagn
Þegar Fréttatíminn kom í Funahöfða höfðu íbúarnir tekið inn rafmagn af efri hæðinni og lágu leiðslurnar um öll gólf. Flestir verkamannanna voru heima enda lá vinna í fyrirtækinu niðri þar sem stjórnendurnir höfðu verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þótt tungumálaerfiðleikar væru miklir var þó ekki erfitt að skilja að þeir höfðu áhyggjur af því að fyrirtækinu yrði lokað og sumir þeirra vildu snúa aftur til Póllands.
Brotafl og Kraftbindingar eru með herbergi fyrir starfsmenn á fleiri stöðum í borginni og nágrenni hennar. Verkamennirnir segjast greiða fimmtíu þúsund á mánuði fyrir herbergið, en leigan er dregin af launum þeirra um hver mánaðamót. Eitt af því sem lögreglan skoðar er hvort lög og reglur um aðbúnað á vinnustöðum og jafnvel mansal hafi verið brotnar. Sönnunarbyrði er þó afar erfið í slíkum málum enda starfsmenn mjög hræddir við að veita upplýsingar. Flestir starfsmannanna sem hér um ræðir eru algerlega upp á fyrirtækið komnir hvað varðar dvölina hérlendis og ótalandi á annað tungumál en pólsku.
Verst var ástandið á Breiðhellu 12 í Hafnarfirði þegar lögreglu bar að garði, þar sem verkamenn bjuggu fyrir ofan verkstæði í eigu Brotafls og sváfu þar allir saman í opnu rými. Þar ofbauð lögreglumönnum aðstaðan.
Eins og fyrir hrun
Þegar ljósmyndari Fréttatímans fór að mynda húsnæðið kom maður þar út og spurði hvort hann væri að koma að kaupa vodka. Hann sagðist hafa um þrettán hundruð krónur í laun á tímann hjá Brotafli og vissi vel að það væri lægra en lágmarkslaun í landinu kvæðu á um.
Bjarni Kjartansson hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segist hafa fengið ábendingar frá lögreglu um að þarna væri búið og eldvarnir hafi verið óviðunandi til búsetu og útgönguleiðir takmarkaðar. Það sé að færast mikið í aukana að verkamönnum sé komið fyrir í atvinnuhúsnæði víða um borgina og full ástæða til að hafa varann á. Þetta sé ekki fólk sem geti verið á leigumarkaði í borginni eins og hann sé í dag. Þarna séu menn að vakna upp við sama veruleika og fyrir hrun.
Tengd frétt: Brotaflsmaður flæktist í mansalsmálið
The post Ábatasöm glæpastarfsemi í byggingabransanum appeared first on Fréttatíminn.