Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Kvíði: Hræddar um að komast ekki í réttan menntaskóla

$
0
0

Vinkonurnar Guðrún Diljá Agnarsdóttir og Þórdís Dóra Jakobsdóttir eru í 10. bekk í Laugalækjaskóla. Guðrún Diljá æfir á fiðlu og stefnir á að komast í MR. Hún vill verða læknir, sálfræðingur eða fiðluleikari. Dísa stefnir á að komast í Versló eða MR, hún vill verða læknir eða listakona. Þær segja tölur um aukinn kvíða unglingsstúlkna ekki koma sér á óvart. Pressan sé svakaleg.

Koma tölur um aukinn kvíða stúlkna ykkur á óvart?

Guðrún Diljá: „Nei, ég get ekki sagt það. Standardar, kröfur og öll hæfniviðmið hafa hækkað svo mikið og það hefur mikil áhrif á það hvernig okkur líður.“
Dísa: „Já, það eru svo rosalega margir í kringum mig sem eru með mikinn kvíða eða kvíða sem blandast við þunglyndi. Kannski er fólk í dag meðvitaðra um þessi mál en áður því það er verið að tala um þau í samfélaginu.“

Hafið þið sjálfar fundið fyrir kvíða?

Guðrún Diljá: „Já, ég hef fundið fyrir kvíða, sérstaklega þar sem ég er í miklu fiðlunámi með skólanum og það er mjög mikið að gera í 10. bekk. Stundum finnst manni að það sé ekki nægur tími til að klára allt.“
Dísa: „Innritunin í framhaldsskóla og þetta nýja einkunnakerfi veldur líka kvíða. Við vitum ekkert hvað þetta þýðir. Nú á allt í einu að gefa sex mögulega bókstafi í stað hundrað mögulegra tölustafa. Og maður veit ekkert hvað þarf að hafa til að komast inn. Sumir segja að þú þurfir 9 til að komast inn í Versló en ég þekki eina stelpu sem komst ekki inn á 9,1.“
Guðrún Diljá: „Okkur finnst ruglandi og stressandi að vita ekki hvað við erum að stefna á og það hefur verið illa að þessum breytingum staðið.“

En af hverju skiptir máli í hvaða skóla þið farið?

Dísa: „Ég veit að það er fáránlegt því ég veit að hinir skólarnir eru góðir en það er samt því miður þannig í samfélaginu að það er litið upp til þessara skóla. En mig langar að verða læknir og þá er MR besti skólinn fyrir mig. Svo er líka gott félagslíf þar.“
Guðrún Diljá: „Já, sama hér. Ég veit að lífið væri ekki búið en ég myndi brotna niður ef ég kæmist ekki í skólann sem mig langar í. Það er líka svo mikil skömm því fólk heldur að maður hafi ekki staðið sig, þó maður sé með 9 í einkunn. Mér finnst aðalvandamálið í kringum okkur vera prófkvíði. Það er svo mikil pressa í skólanum að fá hátt til að komast í menntaskóla. Þá byrjar smá kvíði sem eykst bara og eykst.“
Dísa: „Fullorðnir gera sér ekki grein fyrir því hvað það er kvíðavaldandi að geta ekki orðið það sem maður vill verða, að komast ekki i skólann sem mann langar í.“

Eru stelpur meira að spá í einkunnir en strákar?

Dísa: „Þetta er frekar persónubundið en kynjabundið held ég.“
Guðrún Diljá: „Jú, ég held að það sé meiri metnaður í stelpum, mér finnst þær stefna hærra og taka prófin alvarlegar en strákarnir.“
Dísa: „Já, kannski en auðvitað eru strákar sem taka þessu alvarlega og stelpur sem gera það ekki. En jú, það eru örugglega fleiri stelpur en strákar sem hafa áhyggjur af einkunnum.“

Hvað með samfélagsmiðlana, er pressa þar líka?

Guðrún Diljá: „Það er daglegt brauð hjá unglingsstelpum að skrolla niður facebook og instragram þar sem við sjáum hvernig við „eigum“ að vera. Ég byrjaði 13 ára á facebook og var aðallega að spila leiki en í dag fylgist ég meira með. Auðvitað ætti ekki að skipta máli hversu mörg „læk“ þú færð en það vilja svo margir vera vinsælir. Ef einhver póstar mynd sem fær fullt af „lækum“ þá gæti ég fengið minnimáttarkennd yfir að fá ekki jafn mörg læk. Út frá þessu getur þróast félagsfælni því standardinn hvernig þú átt að vera verður alltaf hærri og hærri.“
Dísa: „Þetta snýst auðvitað mikið um samkeppni, fullt af fólki er að bera sig saman við einhverjar óraunhæfar myndir á samfélagsmiðlum og mamma hefur áhyggjur af því að ég sé of upptekin af þessu. En ég veit alveg að þetta er ekki alvöru og ég ber mig miklu frekar saman við eitthvað í raunveruleikanum. En það er samt fullt af fólki sem áttar sig ekki á þessum mun.“

The post Kvíði: Hræddar um að komast ekki í réttan menntaskóla appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652