
Hildur Kristín og Viktoría eru tvær vinkonur á tíunda ári í Hafnarfirðinum sem æfa sig á hjólabretti í aðstöðu Brettafélags Hafnarfjarðar.
Hildur prófaði brettið fyrst fyrir þremur árum, en Viktoría heillaðist af brettinu við að sjá Hildi spreyta sig.
Viktoría steig á hjólabrettið fyrst fyrir sjö mánuðum, en þremur hjólabrettaæfingum síðar tók hún þátt í hjólabrettamóti og hafnaði í þriðja sæti.


Aðspurðar hverjir séu bestu hjólabrettakappar í heimi eru þær ekki vissar, en segja marga góða æfa í Brettafélagi Hafnarfjarðar: „Við erum allavega bestu stelpurnar hérna,“ segir Viktoria og Hildur er fljót að benda á vinkonu sína: „Hún! Hún er langbesta stelpan á bretti!“
Hildur og Viktoría segja það vanti yngri stelpur á hjólabretti en það séu fullt af eldri stelpum á bretti. Strákunum í Brettafélaginu bera þær vel söguna þó Hildur hafi eina athugasemd við þá: „Þeir eru alltaf fyrir þegar ég er að renna mér,“ segir hún glettnislega.

Stelpurnar segja að allir geti lært á hjólabretti, krakkar sem fullorðnir og jafnvel blaðamaður ef hún æfi sig á hverjum degi.
Aðspurðar hvað sé það fyrsta sem ber að læra þegar byrjað er á hjólabretti eru þær fljótar til svars: Vera með hjálm, kunna að beygja hnén og halla sér í þá átt sem maður er að fara.
Stelpurnar ætlar báðar að renna sér á fullu í sumar, en Viktoría er á leið til Spánar með fjölskyldunni þar sem hún er spenntust fyrir að prófa spænska hjólabrettagarða sem bróðir hennar er búinn að finna fyrir hana á netinu.

The post Brettakempurnar Hildur og Viktoría: Strákarnir eru fyrir appeared first on Fréttatíminn.