Árný Hekla Marinósdóttir stofnaði sérstakan hóp fyrir japanskt leikfangahekl á Facebook. Þar deila 700 meðlimir hópsins með sér uppskriftum að líflegum tuskudýrum.
Í hópnum Arnygurumi á Facebook er hægt að kynnast öllu um menningarfyrirbærið Amigurumi sem er japönsk handverkshefð sem snýst um að hekla eða prjóna lítil dýr, dúkkur, fígúrur og fleira. Yfirleitt er heklað í spíral og hvert verkefni er í nokkrum bútum sem fylltir eru með tróði og síðan saumaðir saman.

Stofnandi hópsins, Árný Hekla Marínósdóttir, er þriggja barna mamma á Seltjarnarnesi sem er handlagin og hugmyndarík. Í öðrum risastórum Facebook hópi, Handóðum heklurum, þótti Árnýju leikfangagerðin týnast og hún ákvað því að stofna sinn eigin hóp.
„Þegar ég stofnaði hópinn í mars bjóst ég við að þarna yrðu kannski 40-50 leikfangaheklarar en núna erum við 745 talsins sem er ótrúlega skemmtilegt. Í hópnum deilum við uppskriftum og fáum hugmyndir. Mig langar mikið að fjölga íslenskum Amigurumi uppskriftum. Möguleikarnir eru endalausir.“
Árný kennir námskeið í þessari tegund hekls í versluninni Handverkskúnst í Hraunbæ. Þar er hægt að læra grunntökin og byrja að hekla leikföng fyrir sig og sína. Árný segir að það að hekla hjálpi sér að viðhalda barninu í sjálfri sér auk þess sem hún vill lífga upp á tilveru barnanna sinna. „Mér finnst þetta bara svo lifandi og skemmtilegt. Maður er fljótur að búa til leikföngin og sér þá árangurinn strax.“

The post Heklar eins og vindurinn appeared first on Fréttatíminn.