Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Jón er kominn heim

$
0
0

Það var alltaf eitthvað bogið við yfirlýsingar stjórnarflokkana um kosningar í haust meðan Sigmundur Davíð Gunnlaugsson stóð í storminum miðjum og Ísland varð að athlægi í augum umheimsins.

Ekki síst í ljósi þess að þeir komu fljótlega fram með óskalista yfir tugi mála sem yrði að afgreiða áður en kosið yrði. Þetta var nær pólitískur ómöguleiki, svo vitnað sé til fleygra ummæla. Og dálítið siðlaust.

En þetta var þá.

Sigmundur Davíð hrökklaðist úr embætti, að því að við héldum og heimsbyggðin öll, þar til dularfull fréttatilkynning úr neðanjarðarbyrgi stjórnarráðsins til erlendra fjölmiðla kvað á um að ráðherrann væri bara farinn í frí um ótilgreindan tíma. Í kjölfarið fylgdu harmþrungnar yfirlýsingar um að ráðherrann hyggðist verja meiri tíma með eiginkonu sinni og barni.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, er núna kominn heim úr fríi, skeggjaður og sólbrúnn. Hann lýsti því yfir við fjölmiðla að það lægi ekkert á því að kjósa, hann ætlaði að halda áfram formennsku í flokknum og það er svo sem ekkert sem kemur í veg fyrir að hann taki aftur við embætti forsætisráðherra.

Sjálfstæðismenn virðast að sama skapi ætla að efna loforð sitt um kosningar. Farandverkamaðurinn úr forsætisráðuneytinu er hinsvegar ekki tilbúinn að slíta sambúð sinni og þjóðarinnar, jafnvel þótt hún samþykki að uppfylla allar óskir hans og eiga með honum og Sjálfstæðisflokknum sjötíu og sex börn, áður en þeir taka saman föggur sínar.

Jón er kominn heim og það virðist ríkja mikill einhugur á Framsóknarheimilinu. Einn framsóknarmaður á dag kemur fram í fjölmiðlum og tekur undir með formanninum. Það liggur ekkert á. Ljúkum kjörtímabilinu. Ráðherrastólar eru undir og þingmennska. Flestir þurfa að finna nýja vinnu að loknum kosningum, nema fyrir kraftaverk.

Á meðan láta kjósendur Framsóknarflokksins sig hverfa hægt og rólega undir pilsfaldinn á Sjálfstæðisflokknum. Flokkurinn er við það að detta út af þingi.

Velgengni Sjálfstæðisflokksins í kjölfar Panama-lekans gerir þó allar stjórnmálaskýringar ótrúverðugar sem hefjast á þeim orðum að kjósendum sé nóg boðið, þeir láti ekki bjóða sér hitt og þetta. Kjósendur sem fylktu sér um Framsóknarflokkinn í síðustu kosningum eru greinilega til í eitt og annað. Það var helst að þeim sárnaði þegar íslenski forsætisráðherrann var loksins búinn að slá í gegn erlendis, og var nú oftast nefndur í hópi skúrka og fjárglæframanna meðal þjóðarleiðtoga eða hann var hreinlega aðhlátursefni.

Sic transit gloria mundi

En flokkarnir tapa ekki bara völdum. Þeir tapa miklum peningum ef þeir uppskera lítið í kosningum. Og það getur lamað innra starf flokkanna og slagkraftinn í kosningabaráttunni, ef menn hafa lifað hátt og ekki lagt fyrir.

Styrkjum ríkisins til flokkanna verður úthlutað 2. febrúar samkvæmt fylgi þeirra þá. Ef Framsóknarflokkurinn uppsker í haust sama fylgi og hann fékk í skoðanakönnun Fréttablaðsins núna fær hann 22 milljónir og tapar 52 milljónum. Svo mikið kostar að neita sér um þann munað að draga lappirnar í nokkra mánuði.

Sjálfstæðisflokkurinn græðir hinsvegar fimmtán milljónir og fær mest allra flokka, eða 95 milljónir. Fast á hæla honum koma Píratar með 72 milljónir.

Og það eru fleiri að hverfa samkvæmt könnunum. Samfylkingin, sem tapar 20 milljónum á haustkosningum og fær 18 og Björt Framtíð sem tapar 20 milljónum og fær 7, láta sig hafa það að drattast með og lesa upp kröfuna um kosningar strax, eins og sinn eigin dauðadóm, með slappan hnefa á lofti.

Allir nema Framsókn.

Þar blygðast menn sín ekki þótt þeir staldri aðeins lengur við í boði almennings, en velvild gestgjafanna gefur tilefni til, klári aðeins meira af veisluborðinu, þar til þeir eru örugglega mettir.
Þóra Kristín

The post Jón er kominn heim appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652