Hægt og bítandi hafa Íslendingar komist að því að allt sport má stunda hérlendis ef viljinn er fyrir hendi. Standandi róðrarbretti (SUP) nýtur vaxandi vinsælda og má stunda nánast hvar sem er í vatni og sjó. Kristján Valdimarsson hefur stundað íþróttina af kappi síðastliðin ár og segir sportið einstaka leið til að tengjast og upplifa íslenska náttúru.

„Ég og konan mín leigðum okkur húsbíl og keyrðum um Ástralíu fyrir mörgum árum. Snemma morguns við sólarupprás sá ég þennan týpíska Ástrala, með sítt ljóst hár, sigla og sörfa á róðrarbrettinu sínu með hundinn á framendanum. Þá heillaðist ég af hugmyndinni,“ segir Kristján Valdimarsson, stofnandi SUP Adventures á Íslandi.

SUP stendur fyrir „stand up paddle“, eða á íslensku standandi róðrarbretti. Búnaðurinn sem þarf til að stunda SUP er minniháttar og samanstendur af uppblásnu bretti, ár og pumpu sem samkvæmt Kristjáni fæst á sanngjörnu verði. „Startkostnaðurinn er í kringum 100.000 krónur en eftir það eru engin auka gjöld, vatnið og náttúran eru opin öllum. Þessari líkamsrækt fylgir frelsi til þess að upplifa náttúru Íslands á einstakan máta.“

Allt í einni tösku
Líkt og nafnið gefur til kynna er staðið upprétt á brettinu og er jafnvægi því mikilvægur þáttur. Þegar viðrar vel til róðrar er þó lítil hætta á að detta í vatnið. Brettið er breitt og formfast, því geta þeir sem þora klæðst hefðbundnum fötum. „Á veturna klæðst ég kuldagallanum og á sumrin stuttbuxum. Blautbúningurinn er því ekki skilyrði en gott öryggisnet fyrir byrjendur og þau sem ætla sér í alvöru hasar.“


Allar græjurnar komast fyrir í einni tösku, á stærð við svefnpoka, sem er tilvalið að hafa meðferðis í skottinu á ferðalögum. „Þegar við fjölskyldan förum í ferðalög eru græjurnar bara í skottinu. Þegar við rekumst á fallegt vatn eða spennandi stað til að kanna þá er ég enga stund að blása brettin upp og skella okkur á vatnið.“ Á brettinu er öllum líkamanum beitt og því góð alhliða hreyfing. „Maður stýrir ferðinni alfarið sjálfur, það er hægt að lalla áfram og taka því rólega eða setja smá hörku í þetta, svitna og geysast áfram.“

Vill sjá fleiri í sportinu
Kristján stundar brimbretti samhliða róðrarbrettinu og segir íslensk veðurskilyrði vanmetin fyrir slíkar íþróttir. „Ég vil sjá fleiri í sportinu því íslensk náttúra hefur upp á ótrúleg færi að bjóða. Það er ekki sambærilegt að horfa út á vatn og standa í miðju þess og upplifa mikilfengleikann. Á góðum dögum hoppa fiskarnir, sólin skín og þá er enginn staður betri að vera á. Á veturna klæðist ég kuldagallanum og fylgist með norðurljósunum. Þetta er heilsárssport sem má stunda allt árið um kring.“

En hvar má stunda íþróttina? „Í raun og veru allstaðar við vötn og sjó. Í grennd við höfuðborgarsvæðið mæli ég með Gróttu, Nauthólsvík, Gullströndinni, Hamravatni, Elliðavatni og við Geldingarnesið er möguleiki á að rekast á seli.“ Skemmtilegasta túrinn segir Kristján án efa vera ferðalagið frá Reykjavík í Viðey. „Ég hef einnig heyrt að róður í Jökulsárlóni sé einstök upplifun, að sigla milli ísjakanna.“
Jóga á brettinu
Róðrarbrettið einskorðast ekki við siglingu en það er vinsælt að stunda jóga og hugleiðslu á vatninu. Kristján tekur að sér hópferðir á vötn í nágrenni við Reykjavík og þá setja menn sig í stellingar hundsins, stríðsmannsins og hugleiða þess á milli. „Það er enginn staður betri til að stunda jóga en á vatni úti. Það krefst sérstakar einbeitingar og meðvitundar um hvern vöðva líkamans til að halda jafnvægi. Það jafnast ekkert á við að vera aftengdur umheiminum með ekkert nema sjálfan þig, róðrarbrettið og náttúruna.“
Hvað er SUP?
SUP stendur fyrir „stand up paddle“ eða standandi róðrarbretti. Staðið er upprétt á brettinu og róið áfram með ár. Íþróttina má stunda í sjó og vatni.
Hvernig byrja ég í SUP?
Hjá SUP Adventures má sækja námskeið á standandi róðrarbretti til að læra undirstöðuatriðið í tækni og líkamsbeitingu. Fyrirtækið býður einnig upp á sölu og útleigu á róðrarbrettum. Fyrir metnaðarfulla má nálgast kennslumyndbönd á Youtube.
Frekari upplýsingar á www.supadventures.is og á Facebook síðunni SUP Adventures in Iceland.
Hvar stunda ég SUP?
Á vötnum og sjó. Kristján mælir með Gróttu, Nauthólsvík, Gullströndinni, Hamravatni, Elliðavatni, Geldingarnesinu og Jökulsárlóni.
The post Alltaf með brettið í skottinu appeared first on Fréttatíminn.