Með hækkandi leiguverði og minnkandi framboði á húsnæði fyrir ungt fólk í startholum lífsins fjölgar þeim sem dvelja í hreiðrinu fram eftir aldri. Í fyrsta sinn í 130 ár er líklegra að Bandaríkjamenn á aldrinum 18-34 ára búi á heimili foreldra sinna, en að það búi í eigin húsnæði með maka. Eru þetta ósjálfstæðir eilífðarunglingar eða er þetta bara það sem koma skal ef leigumarkaðurinn breytist ekki?

Þau Kolbrún Sara og Ásgeir búa saman á neðri hæðinni heima hjá foreldrum Ásgeirs. Þar hafa þau gott rými sem þau nota sem svefnherbergi og stofu, auk eldhúss, en þó borða þau yfirleitt uppi með foreldrum Ásgeirs.
„Við reynum að elda með þeim eins og við getum en það er samt kannski eitt skipti í viku í mesta lagi,“ segir Ásgeir. Þau segjast ekki finna fyrir pressu að flytja út frá foreldrum sínum eða frá fólki í kringum sig: „Fólk undrar sig aðallega á að ég meiki að búa hjá tengdaforeldrum, en held samt ekki að fólki finnist það neitt asnalegt,“segir Kolbrún.
Ásgeir er útskrifaður úr fjármálaverkfræði og vinnur í Íslandsbanka, en Kolbrún er að klára lögfræði í HÍ og ætlar áfram í masterinn strax í haust.
Ásgeir og Kolbrún Sara hafa verið saman í fimm ár, en eftir að þau fóru í fimm mánaða reisu um Suður-Ameríku og Suðaustur-Asíu saman kom ekki annað til greina en að búa saman. Flutti Kolbrún þá inn til Ásgeirs og foreldra hans.

„Við hefðum kannski getað keypt íbúð þegar ég byrjaði að vinna en þá væri ég einn að borga afborganirnar af henni, svo mér finnst fínt að vera aðeins lengur áfram heima og spara fyrir útborgun í íbúð,“ segir Ásgeir. „Já, við erum heppin að hafa þessa aðstöðu,“ segir Kolbrún. „Ef við byggjum á stúdentagörðum værum við með svipað rými og við höfum hér, eini munurinn væri að við værum ein þar.“ Kolbrún segir fæsta vini þeirra á „alvöru“ leigumarkaði, flestir séu á stúdentagörðum eða með einhverskonar fyrirkomulag hjá foreldrum.
Ásgeir og Kolbrún segja tvennt ólíkt að búa hjá foreldrum sem fullorðin manneskja eða sem barn. Þar sem þau séu par líti foreldrarnir kannski síður á Ásgeir sem barn í foreldrahúsum en ef hann væri einn.
Parið segir fáa galla á fyrirkomulaginu utan þess að þeim finnist þau ekki jafn sjálfstæð og ef þau byggju ein, en stórir kostir séu á sambúðinni við foreldrana: „Maður þarf til dæmis ekki að pæla mikið í hvort sé til matur og svoleiðis, sem er mjög þægilegt,“ segir Ásgeir. „Mér finnst líka gott að hún kynnist foreldrum mínum svona vel, svo förum við í mat til mömmu hennar á hverjum sunnudegi,“ segir Ásgeir. Kolbrún segir líka stóran kost að samskiptin séu góð: „Við værum kannski meira að drífa okkur að flytja út ef öllum kæmi ekki vel saman á heimilinu.“


The post Fullorðin í foreldrahúsum: Finnst gott að hún kynnist foreldrum mínum svona vel appeared first on Fréttatíminn.