Ingibjörg Þórðardóttir, ritstjóri fréttavefsíðu CNN, segir að rykið sem þyrlaðist upp eftir Brexit sé langt frá því að setjast. Andúð í garð útlendinga blossaði upp strax eftir kosningar.
Í Bretlandi ríkir pólitískt tómarúm þessa dagana. Stjórnmálaleiðtogar hafa ýmist sagt af sér eða standa laskaðir eftir. Ríkisstjórn Davids Cameron er valdalítil nú þegar hann er á leið úr embætti. „Allir stjórnmálaflokkarnir þurfa að takast á við uppþot þessa dagana, sem er óvenjuleg staða í breskum stjórnmálum. Breskt samfélag finnur nú fyrir þeim miklu efnahagshræringum sem fylgdu kosningunum. Pundið hefur ekki verið jafn veikt í ríflega 30 ár og vandamál í byggingariðnaði aukast. Á móti kemur að ódýrara verður að ferðast til Bretlands og það hjálpar ferðamannaiðnaðinum eitthvað,“ segir Ingibjörg Þórðardóttir, ritstjóri fréttavefsíðu CNN.

Stemning tveimur vikum síðar
Ingibjörg segir það misjafnt hvernig úrslit kosninganna fara í íbúa Bretlands. „Frá kosningum hef ég bara verið í London og á Íslandi, en það er mikilvægt að átta sig á að stemningin fyrir þessu er gjörólík eftir því hvar þú ert. Hér í London eru eiginlega allir enn að jafna sig á sjokkinu, enda kaus borgin að halda sig innan Evrópusambandins. Margir trúa því að þetta muni ekki ganga í gegn, en annars staðar er fólk visst um að það hafi kosið rétt með því að segja já við útgöngunni og vonar svo það besta.“
Ingibjörg segir að fólk hafi nýtt atkvæði sitt með mjög mismunandi ástæður í huga. „Margir töldu að útganga verndaði sjálfstæði Bretlands. Innflytjendamálin og sjálfsákvörðunarréttur í þeim var oft ástæða fyrir útgönguatkvæðum. Aðrir telja að atvinnuástand muni batna sé skorið á sambandið við Evrópu.“

Fyrstu dagana eftir kosningarnar bar nokkuð á andúð gegn útlendingum, jafnvel í hinni fjölmenningarlegu London. „Hér í borg birtist þetta í hegðun sem ekki hefði þótt ásættanleg fyrir Brexit, til dæmis urðu Pólverjar fyrir aðkasti. Allt í einu þótti í lagi að segja hluti sem ekki þóttu í lagi áður.“ Ingibjörg telur þó að dregið hafi úr andúð á síðustu dögum. „Ég vona að lítill hópur skemmi ekki ímynd Bretlands sem fjölbreytts og opins land.“
Áfram óvissa
Ingibjörg segir að óvissan þurfi ekki að koma á óvart. Nauðsynlegt sé að fá stöðugleika í stjórnmálin og botn í það hvernig standa eigi að útgöngunni. „Fjölmargir vöruðu við glundroða og nægir þar að nefna Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Obama, forseta Bandaríkjanna. Ég held að hlutirnir séu að þróast nákvæmlega eins og margir spáðu. Við erum bara búin að sjá toppinn af ísjakanum af öllu því sem mun gerast í kjölfar þessara örlagaríku kosninga. Bretland þarf að græða sárin. Það mun taka tíma.“

The post Bara toppurinn af ísjakanum – Ingibjörg Þórðardóttir, ritstjóri hjá CNN, um Brexit appeared first on Fréttatíminn.