Á Instagram-síðunni Týndir miðar er hægt að skoða alls konar skilaboð á dularfullum miðum sem einhverjir hafa skrifað. Þarna er daglegt líf opnað upp á gátt í sinni hreinustu mynd og allir geta lagt til efni. Eina skilyrðið er að miðarnir séu sannarlega týndir, eða réttara sagt fundnir.
Samfélagsmiðlar eiga sér sínar sérkennilegu hliðar og útskot. Þar geta áhugamál gefið okkur innsýn í líf fólks sem við þekkjum ekki neitt, stundum með sérkennilega einföldum hætti. Þetta á til dæmis við um síðuna Týndir miðar á Instagram.
Hugmyndin er ekki flókin. Notendur senda myndir af minnismiðum sem þeir finna á ákveðið netfang og þær eru síðan birtar á Instagram-síðunni ásamt upplýsingum um hvar miðinn fannst.
Þetta er dálítið dularfull síða. Aðstandandi hennar vill ekki koma fram undir nafni og því sendi Fréttatíminn nokkrar spurningar til hans, svo lesendur gætu áttað sig á þessu skemmtilega áhugamáli.

Hvaðan kom hugmyndin að Týndir miðar?
Ég fann oft innkaupalista á víðavangi sem ég sýndi fjölskyldunni eða vinum. Út frá vangaveltum um innihaldið eða eigandann spruttu mjög skemmtilegar samræður og greinilegt að þessi forvitni eða söfnunaráhugi var ekki einsdæmi hjá mér.
Hvað heillar við týnda miða?
Þeir gefa manni innsýn í líf einhvers fyrir algjöra tilviljun, þó það þurfi stundum hugmyndaflug eða aðstoð frá öðrum til að mynda sér hugmynd um innihaldið. Það er eitthvað svo persónulegt við handskrifaðan miða og líklega eru þeir að verða sjaldgæfari með nýrri samskiptatækni.
Hvað eru miðarnir orðnir margir? Hve margir eru notendur síðunnar?
Það er kominn 31 miði og um 100 notendur. Ég er ekki mjög fundvís á miða þó ég hafi farið í nokkra göngutúra til að finna miða. Þetta verður virkara þegar fólk veit af þessu og sendir inn spennandi miða. Ég vil endilega stækka safnið. Allir geta sent myndir af miðum á tyndirmidar@gmail.com eða i skilaboðum á Instagram.

Miðarnir segja litlar sögur, hvernig verða þær til í huganum útfrá einum litlum miða?
Hvað ætlaði eigandi týnds innkaupalista að elda úr matnum? Mundi hann hvað hann átti að kaupa eða týndi hann miðanum síðar. Ég hef mjög gaman af því að reyna finna trúlega sögu útfrá upplýsingum miðans, fundarstað og rithönd. Getur rithönd til að mynda sagt okkur eitthvað um aldur eða kyn einstaklingsins? Þetta er líka mjög góður samkvæmisleikur. Ég mæli með að fylgjendur síðunnar deili sínum hugmyndum um miðana í athugasemdum.
Er hægt að draga það saman hvað miðarnir eru að segja um íslenskt samfélag? Endurspeglast þarna til dæmis neyslusamfélag eða samfélag fullt af náungakærleik?
Það fer allt eftir hve fundvís við erum á miða. Ég hef til dæmis mikið verið að finna miða sem tengjast ferðamönnum og vinsamlegum athugasemdum en lítið af ástarbréfum eða hrósum enda tel ég að fólk týni þeim síður.
Er þetta ekki dáldið dularfullt áhugamál, eins og skyggnast inn í huga einhvers?
Hehe. Jú, eflaust. En er fólk ekki oft að njósna smá þegar það er til dæmis á Facebook eða Instagram? Á síðunni er nafnleysi og þú getur deilt miða án þess að koma fram undir nafni. En ég birti auðvitað ekkert sem er meiðandi eða óviðeigandi, þetta á bara að vera skemmtilegt.

Hefur einhvern tímann komið fyrir að einhver hafi fundið miðann sinn?
Já, það var einn sem skrifaði athugasemd undir miða um daginn og sagðist hafa skrifað miðann! Það var gaman.
Eitthvað að lokum, dularfulla miðaáhugamanneskja?
Vonandi hefur fólk gaman af síðunni og endilega finnum öll spennndi miða til að deila.

The post Hvert fara allir týndu miðarnir? – Dularfullur aðili tekur við týndum miðum á Instagram appeared first on Fréttatíminn.