Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Amma og afi eru líka með tattú

$
0
0

Þeir eru fjölmargir í dag sem láta tattúera sig í bak og fyrir og útkoman getur verið sérlega töff auk þess sem tattúum fylgja oft skemmtilegar sögur. Það er sjaldnar sem eldri kynslóðir; amma og afi, eru með tattú en hvers konar tattú eru þau með og hver er sagan á bakvið myndina?

Friðrik Danakonungur var tattúfrík

„Ég var 14 ára messastrákur á Gullfossi þegar ég fór og fékk mér tattú hjá konunglega tattúeranum í Kaupmannahöfn sem var kallaður Tatto Ole,“ segir skipstjórinn Jón Steinar. „Tatto Ole var með stofu í Nýhöfn 19 og sá um Friðrik Danakonung sjálfan en sá var algjört tattúfrík! Var allur tattúeraður nema í framan og á höndum.“

Jón fékk sér öll sínu tattú á sama tíma. 14 ára. Mynd/Rut
Jón fékk sér öll sínu tattú á sama tíma. 14 ára. Mynd/Rut

 

Svala og sverð. Mynd/Rut
Svala og sverð. Mynd/Rut

„Tattúin fékk ég mér öll sama kvöldið þangað til aurinn var búinn. Kostaði 25 danskar krónur stykkið og ég með 100 krónur á mér. Útkoman vaarð þessi fjögur tattú. Við vorum þarna nokkrir strákar sem duttum í það í fyrsta skipti og fórum svo saman. Sjálfur æfði ég sund með Ægi og þótti efnilegur sundmaður. Maður var skrautlegur að keppa á sundmótum en ég var sá eini sem var með tattú af keppendunum. Mamma varð alveg spinnegal þegar strákurinn kom aftur heim.“

27980_jon_steinar_tattoo-3
Hvaða nafn ætli hafi staðið undir hjartanu? Mynd/Rut

Þungarokk og friðardúfan
„Þegar ég fékk mér seinna tattúið mitt spurði sá sem tattúeraði mig hvort ég vildi hlusta á tónlist og þá bað ég um þungarokk sem var dálítið fyndið því það var tattú af friðardúfunni,“ segir Sólveig Hauksdóttir sem fékk sér tvö tattú eftir fimmtugt og íhugar að fá sér það þriðja.

Sólveig íhugar að fá sér þriðja tattúið. Mynd/Rut
Sólveig íhugar að fá sér þriðja tattúið. Mynd/Rut

„Fyrsta tattúið er tákn alheimsorkunnar. Ég hef stundað jóga með reglulegu millibili í mörg ár og tattúið tengist þeim fræðum. Árið 1998 gekk ýmislegt á í lífinu og maður varð orkulaus og dapur og þá fannst mér eins og ég þyrfti að tattúera mig. Mér fannst styrkur í því að hafa orkuna teiknaða á mig.“

Friður og alheimsorka á einum handlegg. Mund/Rut
Friður og alheimsorka á einum handlegg. Mund/Rut

„Friðardúfan kemur miklu seinna en ég hafði lengi átt þessa mynd á korti: friðardúfu Picasso. Hún tengist mínum friðarhugmyndum en ég er mikill friðarsinni.“
Barnabarn mitt teiknaði einu sinni fugl fyrir mig, sem táknar auðvitað frelsi og frið. Mér finnst ekkert ólíklegt að ég fái það tattúerað á mig á næstunni.

Sér ekki eftir neinu
„Þegar ég var tvítugur var ég á sjó á Arnarfelli og þá var algengt meðal sjómanna að fá sér húðflúr,“ segir fyrrum sjómaðurinn Kristinn.

Kristinn sigldi um Evrópu og Ameríku. Mynd/Rut
Kristinn sigldi um Evrópu og Ameríku. Mynd/Rut

„Ég ákvað að fá mér tattú af skútu með áletruninni Ísland en ég var edrú þegar ég fór á tattústofuna sem var óvenjulegt. Tattúið fékk ég í Kaupmannahöfn en það var ekki hægt að fá sér húðflúr á Íslandi á þeim tíma. Myndin hefur máðst með aldrinum en ég sé ekkert eftir þessu. Minnir bara á góða tíma, siglingar um Evrópu og Ameríku.“

Íslandsskútan. Mund/Rut
Íslandsskútan. Mund/Rut

The post Amma og afi eru líka með tattú appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652