Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Esju-kláfur kynntur á Kjalarnesi

$
0
0

Opinn kynningarfundur verður haldinn á Kjalarnesi í haust um fyrirhuguð áform um uppsetningu kláfs upp hlíðar Esjunnar.

Þetta var samþykkt á fundi borgarráðs síðasta fimmtudag. Það er fyrirtækið Esju­ferja ehf. sem stendur á bak við framkvæmdina og er Arnþór Þórðarson verkfræðingur í forsvari fyrir félagið.

Hugmyndin spratt fyrst fram upp úr 2010 og er áætlað að framkvæmdirnar muni kosta um 3 milljarða króna. Áætlað er að ferjan geti flutt hundrað til hundrað og fimmtíu þúsund ferðamenn árlega upp á Esjubrúnir.

Gert er ráð fyrir að neðri stöð farþegaferjunnar verði í grennd við bílastæði við botn Kollafjarðar, miðjumastur hennar á Rauðhóli og endastöðin á Esjubrún. Ekki er búið að finna tímasetningu fyrir fundinn. – vg

The post Esju-kláfur kynntur á Kjalarnesi appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652