Íþróttamenn eru ekki einir um að keppa á ólympíuleikunum í Ríó í sumar. Brasilíski götulistamaðurinn Eduardo Kobra keppir einnig að ákveðnu marki: Hann ætlar að setja nýtt Guinnes-met með nýjustu veggmynd sinni.

Verkið, sem ber yfirskriftina Etnias, þekur meira en 2.800 fermetra af yfirgefnu vöruhúsi í einu af nýuppgerðum hverfum Ríó. Veggur umlykur svæðið og á hann er teiknað. Með því að nota skæra liti og geómetrísk form eru teiknuð upp fimm andlit frumbyggja frá fimm heimsálfum. Ólympíuhringirnir fimm eru innblástur að fjölda einstaklinga. Andlitsmyndirnar sýna andlit meðlima Mursi fólksins frá Eþíópíu; Kayin frá Tælandi; Supi frá Evrópu; Huli frá Papúa í Nýju Gíneu og Tapajos frá Ameríku.

„Mig langaði að sýna að við erum öll eitt,“ segir Kobra og vill þannig gefa heilbrigð og jákvæð skilaboð á tímum glundroða og spennu í Ríó og víðar. Verkefnið er framhald af listaverki hans Friðarhorfum (e. Peace Outlooks) sem sýna myndir af fólki eins og Malölu, Martin Luther King og Nelson Mandela.

The post Ekki bara ólympíufarar sem keppa í Brasilíu appeared first on Fréttatíminn.