Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Við getum spilað óléttar

$
0
0

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, lét þau orð falla í vikunni að Stjörnu-konan Harpa Þorsteinsdóttir væri að setja aðra leikmenn í óeðlilega stöðu, með því að spila leik gegn Breiðabliki í dag. Harpa er markahæsti leikmaður úrvalsdeildar, en Breiðablik og Stjarnan mætast í hálfgerðum úrslitaleik deildarinnar í dag.
Harpa svaraði Þorsteini í Fréttablaðinu í gær með þeim hætti að hún sé fullfær um að spila leikinn, ákvörðun hennar um hvort hún geri það sé tekin í samráði við fagfólk. Hún sakar Þorstein um sálfræðihernað gegn sér.

„Ég er komin 14 vikur á leið og er hissa á hve mikil umræða blossar upp um þetta nú. Ég spilaði lengur þegar ég var ófrísk af fyrra barni mínu og það er alls ekki einsdæmi að konur spili fótbolta á þessu stigi meðgöngu. Fjölmargar íþróttakonur hafa sent mér skilaboð um að þær hafi spilað leiki, lengra gengnar með barn en ég er nú. Ein þeirra var Arna Steinsen sem spilaði handboltaleik á 17. viku. En umræðan er mikilvæg. Það er ekki sjúkdómur að vera óléttur og margar stelpur eignast börn og halda áfram í fótbolta. Mér finnst mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir að það er í lagi upp að vissum tímapunkti. Það er einmitt mikilvægt að njóta þess að gera það sem maður er vanur og hefur heilsu til.“
Harpa segist hinsvegar vera komin að mörkunum nú á 14 viku og gefi ekki kost á sér í komandi landsleikjum sem eru framundan.

klara-bjartmarz-ksi-2015Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, segir að ekki hafi verið rætt um þessi mál sérstaklega innan sambandsins. „Ef Harpa treystir sér til að spila, þá bara spilar hún. Það eru engar reglur til, að mér vitandi, sem banna leikmönnum að spila óléttir. Það eru til nákvæmar leiðbeiningar um meðhöndlun höfuðáverka en að öðru leyti eru ekki til reglur sem takmarka leikmönnum að spila.“

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652