Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Sótt þrettán sinnum gegn eigendum Hellisbúans

$
0
0

Óskar og fjölskylda eiga meirihluta í fyrirtækinu sem heldur utan um fjölda leiksýninga. Meðeigandi þeirra, Mango Tree, sem er í eigu sjóðsins Brú II, sem er að langstærstum hluta í eigu lífeyrissjóða og hefur verið í umsjón Thule Investments, hefur alls þrettán sinnum sótt mál gegn félaginu, bæði í gegnum dómstóla og svo aðra stjórnsýslu, og tapað jafn oft.

Síðast var málið þeirra vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur, meðal annars þar sem málflutningur þótti beinlínis ruglingslegur að mati dómara auk þess sem þegar hafði verið tekið á flestum álitaefnunum fyrir hæstarétti, þar sem Óskar og fjölskylda höfðu einmitt betur, en farið var fram á að þau greiddu Mango Tree rúman milljarð þar sem hann stefnendur vildu meina að forgangshlutir í félaginu hefðu breyst í í almenna hluti við samruna félagsins við dótturfélag sitt, Mogul Holding ehf.

Óskar er langþreyttur enda hefur félagið þurft að verjast málssóknum frá hluthöfunum frá árinu 2008. „Þetta er þrettán núll. En sigurinn hefur engu að síður kostað okkur tugi milljóna,“ segir Óskar sem segist varla skilja hvað hluthöfunum gangi til, annað en fjandsamleg yfirtaka.

Sá sem fer fyrir hópnum, að sögn Óskars, er Gísli Hjálmtýsson, en hann var síðast sakaður um furðulega hörku af Tryggva Péturssyni, fjárfesti, í DV í mars 2014 og endaði Tryggvi á að því að kæra Gísla til sérstaks saksóknara vegna umboðssvika. Þeirri kæru var vísað frá af embættinu.

Óskar er ekki aðeins langþreyttur á framgangi Gísla og sjóðanna sem hann fer fram fyrir. „Þetta er búið að vera hálfgert bull. En það er vandræðalegt að dómarar þurfi að taka svona mál ítrekað inn á sitt borð,“ segir Óskar ómyrkur í máli.

Ekki náðist í Hróbjart Jónatansson lögmann Mango Tree vegna málsins.

Myndatexti: Óskar Eiríksson er framkvæmdastjóri Theatermogul.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652