Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Selt inn fyrir 287 milljónir í stærstu ísgöng Evrópu

$
0
0
Tekjur af ísgöngunum í Langjökli námu tæpum 287 milljónum króna í fyrra en um er að ræða fyrsta rekstrarár fyrirtækisins sem byggði göngin og rekur þau, Into the glacier ehf. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi fyrirtækisins. Fyrirtækið skipuleggur ferðir í ísgöngin á sérútbúnum jeppum og fólksflutningabílum frá Húsafelli. 20 þúsund gestir komu í göngin á sjö mánuðum í fyrra.
Ísgöngin eru þau stærstu í Evrópu, 800 metra löng, og hefur verið fjallað um þau í mörgum erlendum fjölmiðlum. Með því að fara inn í göngin er hægt að kynnast Langjökli með nýstárlegum hætti og hafa göngin verið mjög vinsæl hjá erlendum ferðamönnum. Inni í göngunum er meðal annars kapella þar sem hægt er að framkvæma hjónavígslur.
Fyrirtækið er í eigu sjóðsins Landsbréf Icelandic-Tour F slhf. sem sérhæfir sig í fjárfestingum í ferðamannaiðnaði. Stærstu hluthafarnir í sjóðnum eru Icelandair, Landsbankinn og nokkrir lífeyrissjóðir. Þrátt fyrir þessar tekjur var tap á fyrirtækinu, rúmar þrjár milljónir, enda var 2015 fyrsta rekstrarár fyrirtæksins og starfsemin kostnaðarsöm vegna framkvæmda og viðhalds við ísgöngin. Framkvæmdakostnaðurinn við göngin nam tæpum 240 milljónum króna í fyrra.
Anna G. Sverrisdóttir, stjórnarformaður Into the Glacier ehf., segist búast við því að hagnaður verði af ísgöngunum í ár og að reiknað sé með um 40 þúsund gestum í heildina. „Við eigum von á því að skila hagnaði í ár en þetta er dýr útgerð og rekstrarkostnaður er mikill.“ Ferðir eru göngin alla daga, allt árið ef veður leyfir og segir Anna að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi ekki búist við því að geta farið í göngin allan ársins hring.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652