Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Þinghald í erfingjamáli lokað fyrir mistök

$
0
0

Þinghaldi í máli dánarbús Ingvars Helgasonar var lokað fyrir mistök en málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þar deila afkomendur um það hvort dánarbúið eigi að standa straum af kostnaði vegna rannsóknar ráðgjafafyrirtæksins Kroll. Afkomendur óttast að varasjóðir Ingvars Helgasonar séu á forræði Júlíusar Vífils Helgasonar, fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, en upp komst um leynifélag á vegum Júlíusar í Panamaskjölunum fyrr á árinu.

Allir fjölskyldumeðlimir nema Júlíus og bróðir hans, Guðmundur Ágúst, vilja að dánarbúið standi straum af kostnaði vegna rannsóknarinnar. Að sögn lögmanns Júlíusar Vífils og Guðmundar er þó fyrirséð að upphæðin sem hefur verið nefnd, fimm milljónir, geti hækkað verulega ef rannsóknin dregst á langinn. Því hafna bræðurnir að dánarbúið standi straum af kostnaðinum.

Samkvæmt heimildum Fréttatímans er ekki aðeins deilt um meinta leynisjóði, heldur einnig hvort erfðaskrá Ingvars og eiginkonu hans sé yfirhöfuð lögleg. Líklega þarf að reyna á lögmæti hennar fyrir dómstólum, þó talið sé að slíkt hafi ekki nein úrslitaáhrif í málinu.

Þegar blaðamaður hugðist sitja dómshaldið í gær fengust þau svör að það væri lokað þinghald. Engin lögmaður kannaðist þó við það eftir þinghaldið og kom í ljós að þinghaldið var skráð lokað fyrir mistök, að því er fram kemur í svari Þórhildar Líndal, aðstoðarmanns dómara. -vg


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652