„Að sjá svona lagað er sárt, sérstaklega fyrir yngri kynslóðir múslima sem eru fæddir og uppaldir hér á landi. Manni sárnar að sjá svona,“ segir Salmann.
Um 42 prósent landsmanna eru á móti því að múslimar reisi mosku á Íslandi meðan um 32 prósent eru því hlynntir. Andstaðan er ívið meiri en í könnun MMR frá síðasta ári en þá voru tæplega 38% andvíg byggingu bænahússins. Það er því ljóst, samkvæmt könnuninni, að andstaðan við byggingu mosku hefur aukist.
„Þetta eru á margan hátt vanþekking, enda eru nokkrar moskur nú þegar á Íslandi,“ segir Salmann sem undrast andstöðuna við húsin sem slík.
Hann hafnar því þó að Íslendingar séu fordómafullir. „Hinn venjulegi Jón Jónsson er ekki fordómafullur,“ segir Salmann sem segist finna fyrir mjög góðum stuðningi víða úr samfélaginu.
Þegar rýnt er í tölfræði könnunarinnar kemur í ljós að kjósendur Framsóknarflokksins eru helst andvígir byggingu mosku, eða 56,8%. Borgarfulltrúar Framsóknar- og flugvallarvina, keyrðu á andstöðu við byggingu mosku í síðustu sveitarstjórnarkosningum, og uppskáru ríflega, eða tvo borgarfulltrúa.
Þá er rétt rúmlega helmingur kjósenda Sjálfstæðisflokksins andvígur byggingu mosku.
Spurður hvort honum finnist bilið á milli íslenskra múslima og Íslendinga vera að breikka, svarar Salmann neitandi. „Bilið er að breikka á milli fordómafullra og hinna venjulegu. Það sama er að gerast víða í Evrópu og Bandaríkjunum. Heilu samfélögin eru að sundrast út af svona vitleysu,“ segir Salmann. -vg