Tveir starfsmenn fyrirtækisins SMI ehf., sem átti verslanamiðstöðina Korputorg í Mosfellsbæ í gegnum dótturfélagið Stekkjabrekkur ehf., keyptu hana af fyrirtækinu í árslok 2013 í gegnum tvö eignarhaldsfélög. Starfsmennirnir, María Rúnarsdóttir fjármálastjóri og Davíð Freyr Albertsson framkvæmdastjóri, seldu fyrirtækinu verslanamiðstöðina svo aftur fyrir skömmu. Verslanamiðstöðin hefur nú verið seld til fyrirtækis Guðbjargar Matthíasdóttur, ÍSAM ehf, fyrir ótilgreint verð. Byggingin fór því frá SMI ehf. til eignarhaldsfélaga Maríu og Davíðs Freys og aftur til SMI ehf. SMI er nú í eigu lítt þekkts erlends sjóðs sem heitir Calabry Trust og engar upplýsingar finnast um.
María Rúnarsdóttir, sem var í átjánda sæti yfir hæstu skattgreiðendur á Íslandi árið 2014, segir í samtali við Fréttatímann að það sé ekkert að þessum viðskiptum. „Við seldum þetta til SMI.“ En hvernig eignuðust þau María og Davíð Freyr hús fyrirtækis sem þau voru að vinna hjá? „Við bara keyptum húsið í viðskiptum.“ María segir að þau Davíð hafi hætt að starfa hjá SMI um áramótin 2013-2014 en félög þeirra, Finkuþing ehf. og Spóaþing ehf., keyptu húsið af SMI ehf. þá í desember. Þau undirrituðu afsalið vegna kaupanna bæði sem seljendur og kaupendur. „Við ætlum ekki að tjá okkur um málið. Þetta eru bara prívat upplýsingar. Það eru allir sáttir við málið annars væri eitthvað í gangi.“ Samkvæmt þinglýstum gögnum hjá Ríkisskattstjóra var prókúrumboð Davíð Freys yfir SMI ehf. hins vegar ekki afturkallað fyrr en í mars árið 2015 og á sama tíma hætti hann að vera framkvæmdastjóri félagsins.

Korputorg var byggt af færeyska fjárfestinum Jákup á Dul Jacobsen, sem líklegast er þekktastur fyrir að hafa stofnað Rúmfatalagerinn, fyrir hrunið árið 2008 og átti hann það í gegnum SMI ehf. Eftir efnahagshrunið skuldaði hann íslenskum bönkum rúmlega 96 milljarða króna og lá ljóst fyrir að hann myndi missa margar af helstu eignum sínum. Korputorg var stundum uppnefnt „Krepputorg“ eftir hrunið 2008 þar sem það þótti vera tákn um hrunið. Í viðtali við DV árið 2011 tjáði Davíð Freyr sig um skuldauppgjör Jákups en hann var þá framkvæmdastjóri SMI. „Félagið hefur verið að vinna með sínum lánardrottnum en þeirri vinnu er ekki lokið. Það er ekki í okkar valdi að ákveða hvernig þessu lyktar heldur eru það bankarnir sem stýra því.“ Davíð eignaðist svo sjálfur eina af helstu eignum Færeyingsins.
María neitar að tjá sig um kaupverðið á húsinu árið 2013 og eins á hvað þau seldu húsið til SMI ehf. „Öllum hluthöfum og þeim sem komu að málinu var þetta fyllilega ljóst og það var ekkert óeðlilegt við þetta.“ Samkvæmt ársreikningi félagsins sem átti Korputorg og seldi það til félaga Maríu og Davíðs Freys nam kaupverðið rúmlega 4.3 milljörðum króna. Í ársreikningnum segir að kaupendur hússins hafi verið tengdir aðilar: „Fjárfestingareign félagsins var seld á árinu til félags í eigu tengdra aðila.“ Í ársreikningnum kemur fram skuld við tengda aðila upp á 4.8 milljarða króna.
María neitar líka að gefa upp hvenær þau seldu húsið aftur til SMI. „Nei. Mér er það óheimilt.“ Í síðasta mánuði fóru þau María og Davíð Freyr hins vegar úr stjórn Korputorgs ehf. og Jákup á Dúl settist í hana ásamt lögmanninum Viðari Lúðvíkssyni. Þetta kemur fram í þinglýstu skjali hjá Ríkisskattstjóra frá því í september 2016. Miðað við þetta þá hafa þau María og Davíð Freyr selt félagið til SMI ehf. fyrir skömmu og SMI seldi húsið strax aftur til Guðbjargar.
Ekki náðist í Jákup við vinnslu fréttarinnar en hann er búsettur í Sjanghæ í Kína.