Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Innflytjandinn: Salsadrottning verður dramadrottning

$
0
0

„Ég kom hingað eins og svo margir aðrir því ég var yfir mig ástfangin,“ segir Edna Lupida sem flutti til Íslands frá Mexíkó fyrir átján árum. „Fyrstu árin voru mjög erfið því það var algjör martröð fyrir mig að aðlagast íslensku samfélagi. Fyrst og fremst vegna veðursins, matarins og tungumálsins,“ segir Edna hlæjandi á reiprennandi íslensku. „En ég var líka í miklu ójafnvægi sem manneskja á þessum tíma því ég er með geðhvarfasýki og datt í mikið þunglyndi þessi fyrstu ár. Þetta voru of miklar og erfiðar breytingar fyrir mig á of stuttum tíma. Mér fannst maturinn ekki endilega svo vondur en ég saknaði bara svo matarins í Mexíkó, sérstaklega þegar ég varð ólétt. En yndislega tengdamamma mín var svo góð að baka handa mér mikið af skúffuköku og gefa mér malt að drekka með. En þá varð ég auðvitað rosalega feit,“ segir Edna og hlær dátt og innilega.

Edna á þrjár dætur í dag og hefur tekist á við geðhvarfasýkina með ótrúlegum árangri sem hún þakkar fyrst og fremst sinni góðu íslensku fjölskyldu og sínum helstu ástríðum í lífinu, leiklist og dansi. „Ég fór í þýskunám í háskólanum í Mexíkó þó að mig langaði alltaf til að verða dansari. Ég æfði dans og leiklist frá því ég var lítil stelpa og það var alltaf mín helsta ástríða. En ég fékk engan stuðning frá fjölskyldunni til að halda því áfram svo ég valdi tungumálin,“ segir Edna sem lærði síðar spænsku í Háskóla Íslands. „Ég hef samt alltaf stundað og kennt dans meðfram öllu námi og fór að kenna dans í Kramhúsinu eftir að ég flutti til Íslands. Ég var í mikilli maníu á þeim tíma og var alveg handviss um að ég væri salsadrottning Íslands,“ segir Edna og skellihlær. „Ég fór svo úr því að vera salsadrottning Íslands yfir í að vera mesta dramadrottning Íslands.“

29476-edna-01986

„Ég náði þremur góðum áföngum árið 2011. Þá útskrifaðist ég bæði af geðdeild, úr spænsku í háskólanum og úr Listaháskólanum með kennsluréttindi,“ segir Edna sem í kjölfarið fór að kenna leiklist hjá Hlutverkasetri. „Það breytti lífi mínu að taka þátt í starfinu þar. Mér leið alltaf eins og ég ætti ekki rétt á neinu af því að ég er útlendingur en þar var mér sagt að ég ætti fullan rétt á aðstoð eins og allir aðrir. Það töluðu allir svo fallega við mig þar og mér fór í fyrsta sinn að líða eins og Íslendingi. Ég byrjaði líka að þróa það sem ég hafði lært í Listaháskólanum og finna mína eigin aðferð við að nota leiklistina sem sjálfseflingu. Ég stofnaði leikhópinn Húmor-Geðveikt leikhús fyrir alla á þessum tíma, fyrst og fremst til að brjóta niður fordóma í garð geðveikra,“ segir Edna sem er á leið með hópinn á Bratislava á leiklistarhátið í nóvember.

„Við í hópnum höfum öll upplifað geðveiki en við erum fyrst og fremst listamenn,“ segir Edna sem vinnur líka sem leiklistarkennari á Batamiðstöðinni á Kleppi. „Þetta er ný deild sem er hugsuð sem brú frá spítalanum og út samfélagið. Þetta er besta vinna í heimi og það er yndislegt að fá að nýta mína eigin reynslu til að aðstoða fólk við að fara aftur í samfélagið. Listin er það sem hefur bjargað mér á sama hátt og fjölskyldan mín og allt fólkið sem trúir á mig. Mér finnst mikill heiður að fá að vinna á Kleppi.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652