Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Eigum við að senda fjölskylduna úr landi?

$
0
0
30456-thorgerdur

Horfumst í augu við að fjölbreytileikinn er frábær

„Ég vil að sjálfsögðu að þau fái að vera áfram á Íslandi. Þegar fólk er búið að vera hér í einhvern tíma og aðlagast íslensku samfélagi þá á að reyna allt annað fyrst en að senda fólk úr landi. Þetta er eitt af sorglegu dæmunum sem sýna að kerfið fúnkerar ekki. Við í Viðreisn viljum að reglur séu skýrar, mannlegar og rausæjar. Þegar fólk er komið hingað til lands og orðið hluti af samfélaginu, hvort sem það er í gegnum vinnu eða skóla, þá hljótum við að geta tekið á málum með öðrum hætti. Þessi fjölskylda hefur verið hér á þriðja ár og við ættum frekar að hjálpa þeim við að vera hér áfram. Fjölbreytileikinn er frábær og fólk verður að horfast í augu við það.“
Þorgerður Katrín Gunanrsdóttir, Viðreisn

 

30461_logi_einarsson

Börn eiga að njóta friðhelgi „Ég þekki ekki þetta tiltekna mál, en almennt finnst mér að við getum gert miklu betur í málefnum flóttamanna. Brátt ályktað finnst mér að það eigi ekki að vísa fjölskyldunni úr landi þar sem bæði börnin eru fædd hér og eiga að njóta ákveðinnar friðhelgi og verndar. Börnin eiga skilyrðislaust að njóta réttar þegar þau eru fædd hér á landi.“
Logi Már Einarsson, Samfylkingu
30456-gunnar-bragi-adal

Galið að börnin lendi í þessu „Ég þekki ekki málsástæður í heild sinni en þetta mál segir okkur hvað kerfið er gallað. Það tekur allt of langan tíma fyrir fólk að fá úrlausn sinna mála. Í þessu tilviki hefur kerfið augljóslega klikkað og nú ber að taka hagsmuni barnanna fram yfir allt annað. Númer eitt, tvö og þrjú þarf að tryggja það sem er þeim fyrir bestu. Ef þeirra hagsmunum er best borgið með því að vera áfram, þá verða þau að fá að vera í landinu. Það er alveg galið að blessuð börnin skuli lenda í þessu.“  Gunnar Bragi Sveinsson, Framsókn

30456-bjort-1664

Siðferðisleg skylda að vernda þau „Mér finnst að fjölskyldan ætti að fá að vera hér, á þeim forsendum að börnin fæddust hér. Ísland er eina landið sem þau hafa búið í og þau eiga ekkert annað heimili. Það er siðferðisleg skylda okkar að passa upp á þá sem hafa fæðst inn í íslenskt samfélag og þekkja ekkert annað.” Björt Ólafsdóttir, Bjartri framtíð

30456-unnur-01082
Þekki ekki málið „Ég þekki málið ekkert og það er erfitt að segja til um það án þess að þekkja málsatvik. Eins og í öllum svona málum þá er það bara einfaldlega ekki hægt. Við stjórnmálamenn höfum auðvitað ekki aðgang að gögnum í svona málum. Við erum hinsvegar búin að gera breytingar á útlendingalöggjöfinni sem taka gildi um áramótin.“  Unnur Brá Konráðsdóttir, Sjálfstæðisflokki

 

30456-svandis-svavarsdottir

Prinsippmál að leyfa þeim að vera „Ég þekki málið ekki í þaula en ég get ekki betur séð en að það varði við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem segir að hagsmunir barnsins skuli hafðir að leiðarljósi, sama hvar mál foreldranna er statt í kerfinu. Ég sé ekki betur en að það sé verið að fara á svig við barnasáttmálann með því að rífa börnin úr sínu umhverfi, leikskóla og daglegu lífi. Mér finnst það vera prinsippmál að leyfa börnunum að vera.“ Svandís Svavarsdóttir, Vinstri grænum

 

birgitta-30456

Engin lög krefjast brottvísunar „Mér finnst ekki að það eigi að senda fjölskylduna úr landi, frekar en að það eigi að senda íslenskan dreng í fóstur til Noregs. Það er ekkert í íslenskum lögum sem segir að við verðum að senda þau úr landi. Dyflinarreglugerðin er skálkaskjól, í henni er heimild til að senda fólk til upprunalandsins en það er ekki krafa. Við, aftur á móti, notum þessa heimild eins mikið og hægt er. Þessi aðgerð, að vísa fjölskyldunni úr landi, er þvert á það sem kom skýrt fram hjá innanríkisráðherra og þverpólitískri nefnd sem vann að nýjum útlendingalögum. Ómannúðlegar ákvarðanir sem þessi, er ekki í anda þess sem rætt var um þegar unnið var að þessum nýju lögum. Ég hef komið að alltof mörgum svona málum og ég get rétt ímyndað mér hvernig fólki líður. Það verður að laga þetta.“ Birgitta Jónsdóttir, Pírötum


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652