Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Sögur af vináttu: Traustið skiptir máli

$
0
0

Fyrir utan hversu mikla ánægju vináttan veitir okkur þá sýna rannsóknir að vináttan getur minnkað stress og álag. Hún er því ekki bara holl fyrir sálina heldur líka hjartað. Vinir þurfa aldrei að þykjast og vináttan er skjólið sem alltaf er hægt að leita í, segir einn viðmælandi Fréttatímans um mikilvægi vináttunnar. Öll þurfum við að leika ýmis hlutverk í leik og starfi og þess vegna er svo gott að geta hitt hópinn og fellt grímuna, segir annar.

„Við Steini ólumst upp í húsum sem voru hlið við hlið og erum báðir fæddir í nóvember árið 1975. Vinskapurinn byrjaði þannig að við vorum settir skríðandi út í garð saman og svo höfum við fylgst að meira og minna síðan þá. Við erum líkir að því leytinu til að við erum báðir langyngsta systkinið og áttum báðir eldri foreldra en vinir okkar, við erum því báðir aldir upp á dálítið gamaldags heimilum,“ segir Hannes.
„Við vorum rosalega mikið úti í garði og ég man að ég kom stundum sár heim því Hannes var stærri og hafði þá verið að bögglast eitthvað með mig,“ segir Steini. „Við vorum oft pirraðir hvor á öðrum eins og gengur og gerist með góða vini. Við stofnuðum hljómsveit í garðinum og spiluðum Egó-lög þegar við vorum fimm ára, ætli Hannes hafi ekki verið á trommum. Hann tók trommurnar upp mjög snemma og ég man eftir honum með algjöra dellu, í sófasettinu heima hjá mér og við skrifborð pabba hans sem var allt í skörðum eftir hamaganginn.“

Kamelljón og gömul sál

Húsin þeirra Hannesar og Steina voru hlið við hlið í vesturbæ Kópavogs sem þeir segja hafa verið draumastað að alast upp á.
„Þetta var eins og lítið þorp,“ segir Hannes. „Við hlupum saman á milli garða og hittum hina vinina sem voru allir í næstu götu. Það var allt til staðar, búðin, sjoppan, bakaríið, fiskbúðin og félagsmiðstöðin. Við vorum alltaf að gera eitthvað saman, í fótbolta, skjóta af túttubyssum eða teika bíla. Svo fórum við í gaggó og byrjuðum að elta stelpur og prófa allskonar hluti saman. Eftir unglingsaldurinn fórum við hvor í sína áttina og fengum áhuga á ólíkum hlutum en við héldum samt alltaf sambandi.“
„Steini er algjört kamelljón. Hann fær mikinn áhuga á einhverju og nær einhvernveginn að fullkomna sig á því sviði á mjög stuttum tíma. Í fyrra ákvað hann til dæmis að fá allt í einu áhuga á fótbolta og fór alla leið með það, var allt í einu farinn að tala mjög mikið um fótbolta. Svo fékk hann áhuga á hundum og bílum og fór líka alla leið með það. En hann hefur alltaf verið mikill hönnuður og það er gaman að fylgjast með honum í því.“
„Já, við fórum í ólíkar áttir á unglingsárunum,“ segir Steini. „Ég fór að hanga í bænum og eignaðist nýja vini þar, og ég er ekkert viss um að við myndum kynnast í dag ef við kæmum hvor úr sinni áttinni. En við eigum þessa sameiginlegu fortíð og þekkjum hvor annan mjög vel og höfum alltaf haldið sambandi. Það sem er gott við Hannes er að hann segir alltaf það sem honum finnst og ég held að hann sé dálítið gömul sál. Hann er pínu dulur stundum en algjör vinur vina sinna. Við erum hvor í sinni kreðsunni í dag en hittumst samt alltaf, fengum okkur til dæmis hádegismat saman í vikunni og svo hittumst við reglulega í gegnum gamla vinahópinn.“

Límið er í vinskapnum

Gamli vinahópurinn úr Kópavogi hefur alla tíð haldið hópinn og segja vinirnir flesta vera komna aftur í gamla hverfið eða þá á leiðinni þangað.

„Það myndaðist þarna sterkur vinskapur sem hefur haldist allar götur síðan,“ segir Hannes. „Þrátt fyrir árin sem hafa liðið þá er þessi vinskapur ennþá sterkari en allur annar sem hefur myndast á leiðinni, þetta er í raun alveg ótrúlegur hópur. Um daginn lést einn okkar og þá fann maður fyrir því hvað þetta er magnað. Við höfum allir farið í ólíkar áttir í námi og starfi og sumir búið erlendis, eins og gengur og gerist, en alltaf höfum við samt leitað tilbaka í þennan hóp. Sérstaklega ef einn okkar lendir í einhverju, flytur, giftir sig eða skilur, þá er hópurinn alltaf mættur.“
„Við fórum alltaf reglulega í bumbubolta þar sem við hittumst eftir kvöldmat og spiluðum bolta á völlunum hér í hverfinu,“ segir Steini en þeir Hannes eru báðir komnir aftur í Kópavoginn eftir stutta dvöl í höfuðborginni. „Við fórum líka allir saman til Berlínar í fyrra þegar við urðum fertugir og það var bara frábært. Við erum auðvitað mjög ólíkir og á allskonar stöðum í lífinu en það er alltaf afslappað að vera saman. Þegar maður verður eldri þá kemst maður að því að þetta er ekkert sjálfsagt.“
„Það er ákveðið traust til staðar sem skiptir miklu máli en það sem skiptir kannski mestu máli er að allir geta verið þeir sjálfir innan hópsins,“ segir Hannes. „Menn þurfa oft að leika allskonar skjöldum í lífi og starfi, sumir eru kennarar, læknar eða í opinberum störfum, og þess vegna er svo mikilvægt að geta komið í hópinn og bara látið eins og fávitar. Við hittumst mjög reglulega og erum alltaf að gera eitthvað, það þarf ekki að vera meira en að bara grilla saman. Maður hefur gert fullt af hlutum í gegnum tíðina og kynnst fullt af fólki en límið er þarna, í þessum vinskap.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652