Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Segir einkarekið sjúkrahús vera lausn gegn biðlistum

$
0
0
„Ég er algjör talsmaður þess að heilbrigðiskerfið eigi að vera ríkisfjármagnað. Það er algjörlega glórulaust að við stefnum að einhverju öðru en því að heilbrigðiskerfið sé ríkisrekið,“ segir Hjálmar Þorsteinsson, sem er bæklunarskurðlæknir og framkvæmdastjóri einkarekna heilbrigðisfyrirtækisins Klíníkurinnar, aðspurður um umsókn þess að fá opna legudeild fyrir fólk sem gengst undir aðgerðir hjá því. Klíníkin vill auk þess að íslenska ríkið greiði fyrir mjaðmaskipta- og hnjáskiptaaðgerðir sem Klíníkin hyggst bjóða upp á.
Fréttatíminn sagði frá málinu á föstudaginn og segir landlæknir, Birgir Jakobsson, að í umsókninni felist að Klíníkin vilji í reynd opna sjúkrahús og veita „sérhæfða sjúkrahúsþjónustu“. Þetta yrði fyrsta einkarekna sjúkrahúsið á Íslandi.
Hjálmar segir að vandamálið sé hins vegar að fólk þurfi að bíða of lengi eftir heilbrigðisþjónustu á ríkisreknum spítölum því að biðlistar eftir aðgerðum séu of langir. „Það sem er mikilvægast er að við tryggjum aðgengi og réttindi þeirra sem þurfa þjónustuna. En við getum ekki tryggt að fólk fái þjónustu innan eðlilegs biðtíma. Það eru til dæmis um 500 manns á biðlista eftir mjaðmaskiptaaðgerðum og 800 manns bíða eftir hnjáskiptum. […] Hvernig sem menn ætla að fara að því að laga þennan vanda þá verða yfirvöld bara að hysja upp um sig buxurnar og laga þetta,“ segir Hjálmar.
Hann segir að Klíníkin vilji stytta þessa biðlista með því að bjóða upp á þessar aðgerðir hjá fyrirtækinu þar sem mikil bið sé eftir þessum aðgerðum. „Umsóknin snýst um möguleika á því að opna legudeild frá mánudegi til föstudags fyrir sjúklinga sem þurfa á hjúkrun að halda eftir aðgerð. Það er ekki tekið fram hvaða aðgerðir verða gerðar, í raun bara þær aðgerðir sem ríkið er tilbúið að opna á viðræður um að semja um.“
Hjálmar segir aðspurður að hann vilji ekki tjá sig um meðferð umsóknar Klíníkurinnar hjá heilbrigðisyfirvöldum og að Klíníkin bíði bara eftir niðurstöðu úr því ferli.
Segir einkarekið sjúkrahús
vera lausn gegn biðlistum

Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652