Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Forréttindi að fá að spila með systur sinni

$
0
0
Systurnar Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur spila báðar með Kristianstad í Svíþjóð, og auk þess spila þær saman með íslenska landsliðinu. Þær segja að með því að æfa saman daglega setji þær jákvæða pressu á hvor aðra og fá hvatningu til að gera ennþá betur. Þær hafa báðar tekið þátt á fjölmörgum Símamótum í gegnum tíðina og í tilefni þess að 31. Símamótið fer fram nú um helgina gáfu þær systur sér tíma fyrir létt spjall. Þær ráðleggja núverandi keppendum að njóta mótsins því þar verða til minningar sem lifa að eilífu.

Margrét Lára Viðarsdóttir

Hversu oft hefur þú tekið þátt á Símamótinu og með hvaða liði?

Ég er Vestmannaeyingur og þess vegna spilaði ég með ÍBV. Ég hef ekki töluna á því hversu oft ég tók þátt á Símamótinu sem leikmaður en það var ansi oft. Frá 7. flokki upp í 3. flokk kom ég á hverju ári á Gull og silfur mótið eins og það hét einu sinni. Þannig að þetta hafa verið kannski 7-8 mót sem ég tók þátt í.

Manstu eftir einhverju skemmtilegu atviki frá Símamótinu sem stendur upp úr?

Margrét Lára Viðarsdóttir Félagslið: Kristianstad Fjöldi landsleikja: 98 Mörk: 71 Númer treyju: 9 Staða á vellinum: Sóknarmaður

Margrét Lára Viðarsdóttir Félagslið: Kristianstad Fjöldi landsleikja: 98 Mörk: 71 Númer treyju: 9 Staða á vellinum: Sóknarmaður

Ég á mjög margar skemmtilegar minningar af Símamótinu. Við ÍBV stelpurnar vorum mjög sigursælt lið upp alla yngri flokkana. Við töpuðum nánast ekki leik og unnum flest mót sem við tókum þátt í þannig að fyrir mér eru það þær minningar sem standa upp úr.

Hvernig er að spila með sama félagsliði og systir þín?

Það er mjög gaman. Við spiluðum aldrei saman í ÍBV þar sem að ég er 5 árum eldri og fór ung í atvinnumennsku. Hins vegar höfum við verið lánsamar að fá að spila saman nú í ár með Kristianstad og auðvitað landsliðinu. Þetta eru forréttindi og ég er afar stolt af litlu systur minni.

Hafið þið spilað saman marga landsleiki?

Nei því miður alltof fáa en þó eigum við nokkra. Ég missti út 2014 vegna barneigna og það var árið sem Elísa stimplaði sig inn í landsliðið. Ef við höldum áfram að standa okkur vel þá er framtíðin björt og við eigum eftir að spila fleiri leiki saman í bláa búningnum.

Hvaða ráð getur þú gefið ungum, upprennandi knattspyrnustelpum sem eru að keppa á Símamótinu?

Fyrst og fremst að njóta þess að spila fótbolta því þessi tími kemur ekki aftur. Leyfa sér að láta sig dreyma um stóra hluti í framtíðinni og setja sér markmið til að ná þeim draumum. Maður getur allt ef maður er tilbúinn að leggja mikið á sig og lifa heilbrigðu lífi. Gangi ykkur vel og við sjáumst á vellinum. Áfram Ísland!

Elísa Viðarsdóttir

Hversu oft hefur þú tekið þátt á Símamótinu og með hvaða liði?

Ég hef spilað 6 sinnum á Símamótinu með ÍBV. Við vorum með mjög sterkt lið á þeim tíma og unnum mótið í 3 skipti af þessum 6.

Manstu eftir einhverju skemmtilegu atviki frá Símamótinu sem stendur upp úr?

Elísa Viðarsdóttir Félagslið: Kristianstad Fjöldi landsleikja: 20 Númer treyju: 7 Staða á vellinum: Varnarmaður

Elísa Viðarsdóttir Félagslið: Kristianstad Fjöldi landsleikja: 20 Númer treyju: 7 Staða á vellinum: Varnarmaður

Ég man eitt mótið þegar að við töpuðum úrslitaleik á móti Breiðabliki sem voru okkar helstu keppinautar á þeim tíma. Eftir að flautað var til leiksloka lágum við stelpurnar í mínu liði allar í grasinu hágrátandi og áttu foreldrar okkar í miklu basli við að róa okkur niður. Þetta var ansi lýsandi dæmi um keppnisskapið sem við höfðum og tel ég þetta keppnisskap vera eitt af því sem var valdur þess að við náðum oft góðum árangri á Símamótinu.

Hvernig er að spila með sama félagsliði og systir þín?

Frá því að ég var smástelpa var alltaf draumurinn að fá að spila í sama liði og stóra systir. Að fá svo að upplifa drauminn um atvinnumennsku með henni er ennþá betra. Margrét býr yfir mikilli reynslu og hefur hún kennt mér mjög margt á þessu tæpa ári sem við höfum spilað saman hjá Kristianstad. Ég tel að við setjum jákvæða pressu á hvor aðra og fáum hvor aðra til þess að vilja gera ennþá betur, við erum báðar miklar keppnismanneskjur og það gefur manni alltaf smá auka orku að vilja ekki tapa á móti systur sinni á æfingum. Vonandi getum við haldið áfram að skapa saman góðar minningar úr fótboltanum bæði með félags- og landsliði því það er ekki sjálfgefið að fá að gera það sem maður elskar að gera og hafa góðan stuðning frá systur sinni sem veit um hvað þetta snýst.

Hafið þið spilað saman marga landsleiki?

Við höfum spilað allt of fáa landsleiki saman, vonandi getum við bætt úr því í komandi framtíð.

Hvaða ráð getur þú gefið ungum, upprennandi knattspyrnustelpum sem eru að keppa á Símamótinu?

Að vera duglegar að æfa, leggja sig alltaf 100% fram, hafa hugarfarið í lagi og hlusta á þjálfarana ykkar. Það mun skila ykkur á þann stað sem þið ætlið ykkur. Njótið þess að spila á Símamótinu vegna þess að þið eruð að búa til minningar sem munu lifa að eilífu.

Viðtalið er að finna í sérstöku blaði um Símamótið, sem fylgir Fréttatímanum um helgina. Þar má finna ítarlega umfjöllun um mótið, auk viðtala við fyrrverandi og núverandi keppendur.Fors----a_S--mamoti--2015-wpcf_380x550

The post Forréttindi að fá að spila með systur sinni appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652