Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ísinn malar arð fyrir eigendurna

$
0
0

Ísbúð Vesturbæjar á Hagamelnum í Reykjavík hagnaðist um rúmlega 50 milljónir króna í fyrra. Ísbúðin, sem er ein af þeim þekktari á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið mjög vinsæl um árabil og myndast tíðum langar raðir af gestum fyrir utan hana. Þó ísbúðin sé kennd við Vesturbæinn, þar sem fyrsta ísverslunin opnaði, þá er hún einnig á sex öðrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, meðal annars í Kópavogi og Hafnarfirði. Fyrirtækið hefur gengið vel á liðnum árum og skilað hagnaði ár eftir ár. Í fyrra greiddi ísbúðin út 46,5 milljóna arð og árið á undan voru það 82 milljónir króna. Nær öruggt  má telja að engin önnur ísbúð á Íslandi skili viðlíka arði til eigenda sinna


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652