„Ég ætla ekki að spá öðru hruni en það er alveg ljóst að fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á útflutningi finna fyrir því þegar gengið styrkist jafn mikið og það hefur gert síðastliðin tvö ár,“ segir Bjarni Benediktsson.
Bjarni segir mikilvægt að fara yfir peningastefnuna með hliðsjón af því hversu stór ferðaþjónustan sé orðin í samfélaginu og þeim breytingum sem hafi orðið í samfélaginu jafnhliða því. „Við þurfum að spyrja hvort það sé nauðsynlegt að fylgja svona stífu verðbólgumarkmiði, það er brýnt að meta árangurinn af núverandi peningastefnu.“
Morgunblaðið vitnar til þess í gær að Seðlabankinn hafi verið harðlega gagnrýndur, sem og vaxtastefna hans, á fundi hjá Samtökum ferðaþjónustunnar í vikunni, Seðlabankinn tjáir sig ekki um vaxtastefnuna þar sem vaxtaákvörðun verður kynnt í næstu viku.