Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Úti er inn

$
0
0
Þegar kemur að því að velja sér útivistarfatnað skiptir mestu máli að velja rétta fatnaðinn fyrir réttu aðstæðurnar. Markmið Cintamani er að koma til móts við þarfir fólks sem stundar mjög fjölbreytta útivist og því ættu allir að geta fundið sér eitthvað við hæfi í einni af fimm verslunum Cintamani.

„Tegund útivistar skiptir vissulega máli þegar verið er að velja útivistarfatnað,“ segir Lilja Kristín Birgisdóttir, verslunarstjóri Cintamani í Smáralind. „Okkur þykir mikilvægt að viðskiptavinir okkar öðlist vitneskju um það hvernig eigi að velja saman föt fyrir hvers konar útivist. Við reynum því að greina þarfir hvers viðskiptavinar fyrir sig eftir bestu getu svo að hann gangi sáttur út í fatnaði sem hann mun nota sem mest.“ Hjá Cintamani er að finna fjölbreyttan fatnað sem hentar vel í ólíkar tegundir útivistar. „Þannig gæti viðskiptavinur til dæmis keypt sér jakka sem er frábær í fjallgöngur en sami jakki gæti einnig hentað vel á skíði eða í klifur. Við reynum að hanna flíkur sem eru ekki of sérhæfðar við eina tegund útivistar,“ segir Lilja.

Þriggja laga kerfið sigrar allar tegundir veðra
Hjá Cintamani er notast við svokallað þriggja laga kerfi. „Kerfið skiptist í innsta lag, miðlag og ysta lag og með notkun þess er hægt að halda á sér hita, koma í veg fyrir rakamyndun og standast öll veðrabrigði,“ segir Lilja. Innsta lagið er það lag af fötum sem klæðst er næst húðinni. Tilgangur innsta lagsins er að færa svita frá húðinni og út í næsta lag. Miðlagið hefur það hlutverk að einangra hita og færa svita frá innsta lagi út í ysta lag. Ysta lagið sér svo um að einangra hita og andar vel á meðan það ver mann fyrir vatni og vindum. Spurð um dæmi um aðstæður þar sem þörf er á öllum lögum nefnir Lilja til dæmis langar gönguferðir, skíði og snjóbretti.

22380 Lilja Kristín Birgisdóttir, verslunarstjóri Cintamani

Tinna Anorakkur er þriggja laga skel fyrir konur. „Þriggja laga skeljarnar eru það sem við köllum harðar skeljar og eru frábært ysta lag,“ segir Lilja Kristín, verslunarstjóri Cintamani í Smáralind. „Sniðið á Tinnu er skemmtilegt og er hún síðari en aðrar skeljar hjá okkur. Tinna fæst í mörgum litum og við mælum með björtu litunum, ekki bara til að brjóta upp hversdagsleikann heldur líka af öryggisástæðum svo maður sjáist betur.“ mynd/Hari.

Klæðum okkur vel og njótum náttúrunnar
Útivistarsumarið nær brátt hámarki hér á landi og þó svo að nú sé hásumar, á íslenskan mælikvarða, er gott að vera vel viðbúin allri veðráttu. „Það þýðir lítið að stóla á íslenska veðurspá og því er gott að vera vel klædd. Það er fátt verra en að vera blautur og kaldur á ferðalagi,“ segir Lilja. Cintamani tekur virkan þátt í útivistinni í sumar og stendur fyrir skemmtilegum ljósmyndaleik. „Við hvetjum alla ferðalanga til að vera duglega að taka myndir af sér í íslenskri náttúru, fylgja okkur á Instagram á cintamani_iceland og annað hvort setja inn mynd á Instagram með merkinu #utierinn eða senda okkur skemmtilegar myndir á netfangið myndir@cintamani.is,“ segir Lilja. Sigurmyndin verður svo valin þann 29. júlí og vinningshafi hlýtur gjafabréf að verðmæti 100.000 kr. í Cintamani.

Unnið í samstarfi við Cintamani

 

The post Úti er inn appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652