Tónlistarmennirnir Vanilla Ice, Salt-N-Peppa, Snap, Dr. Alban og Haddaway munu koma fram á tónleikum á Íslandi í febrúar á næsta ári, en þau eiga það öll sameiginlegt að hafa verið sjóðand heit í tónlistarlífinu á tíunda áratugnum.
Tónleikahaldarinn Björgvin Rúnarsson segir að tímasetningin hafi verið valinn með það að leiðarljósi að létta landanum lundina í skammdegisþunglyndinu sem er í ákveðnu hámarki í febrúar, en tónleikarnir verða þann 6.febrúar í Vodafone höllinni.
Búið er að staðfesta það að Herbert Guðmundsson muni einnig koma fram á tónleikunum, og má því búast við góðri veislu í hlíðunum í febrúar.
The post Vanilla Ice, Salt-N-Pepa og Haddaway á Íslandi. appeared first on FRÉTTATÍMINN.