Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna birti í gær ársskýrslu þar sem fram kom að aldrei hafa fleiri leitað sér aðstoðar samtakanna vegna ástandsins leigumarkaði.
„Aukningin skýrist bæði af því að fólk er meðvitað um þjónustu okkar og vegna erfiðs ástands á leigumarkaði,“ segir Hrannar Már Gunnarsson, stjórnandi leigjendaaðstoðarinnar. Samtökin hafa fengið um tíu þúsund fyrirspurnir frá árinu 2011. Undanfarin þrjú ár hafa fyrirspurnir verið yfir tvö þúsund á ári en langflestar snúa að ástandi og viðhaldi, og hvað þyki eðlilegt leiguverð.
„Það koma oft fyrirspurnir um viðhald, til dæmis er farið fram á að leigjandi máli eða endurnýi eldhústæki,“ útskýrir Hrannar Már en svo virðist vera að staða leigjenda sé orðin það slæm, að leigjendur fallist á skilmála sem stangast á við lög.
„Aðrar fyrirspurnir eru frekar um ástandið á markaðnum,“ útskýrir Hrannar en tæplega 700 fyrirspurnir bárust á síðasta ári um annað en það sem viðkemur lögum á leigjendamarkaði. Hann segir það sé til marks um að leigjendur séu ringlaðir vegna örra breytinga á markaði.
Tónlistarkonan Magga Stína hefur síðan 2010 búið í þremur leiguíbúðum. Fyrir hálfu ári flutti hún úr einni íbúð sem hún hafði ítrekað óskað eftir viðhaldi á. Hún telur að á leigumarkaði ríki sú tilhneiging að viðhald íbúða sé háð gildismati leigusalans. Orð leigjandans vegi ekki jafn þungt. „Á mínum leiguferli hef ég ítrekað upplifað það að mitt mat á ástandi hússins hafi ekki verið tekið gilt. Lítið var brugðist við þegar ég benti á það sem var ábótavant.“