Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Sýnir ógnvekjandi raunveruleika á Íslandi

$
0
0

„Við búum í litlu landi og það eru allskyns tabú í gangi og mér finnst spennandi að fjalla um eitthvað af þeim. Það er til allskonar fólk á Íslandi eins og allstaðar annarsstaðar í heiminum, það er ekkert öðruvísi hér en annarsstaðar. Fólk vill oft búa sér til einhvern íslenskan raunveruleika en hann er ekki til,“ segir Þórsteinn Sigurðsson, nemi í Ljósmyndaskólanum.

Að sögn Þórsteins er mikilvægt að eiga heimild um alla kima samfélagsins.
Að sögn Þórsteins er mikilvægt að eiga heimild um alla kima samfélagsins.

Að sögn Þórsteins er mikilvægt að eiga heimild um alla kima samfélagsins og að myndavél sé í raun skráningartæki. „Það er einhver rödd innra með mér sem segir að ég eigi að segja sögur. Allar aðstæður í myndunum mínum eru raunverulegar, enginn skáldskapur og ég er ekki að búa neitt til. Mínar fyrirmyndir í ljósmyndun eru þeir sem segja sögur sem eru ekkert endilega fyrir framan mann í hinu daglegu lífi.“
Þórsteinn leggur mikla áherslu á rannsóknarvinnu áður en sjálf myndin er tekin. „Ég byrja á því að tala við allskonar fólk um hvort leynist fjársjóður einhversstaðar í samfélaginu. Það er hluti af þessu að bera fram hugmyndirnar sínar og vinna sér inn eitthvað ákveðið traust og það er alveg jafn mikilvægur hluti af ferlinu eins og að mynda síðan að lokum. Undirbúningsvinna að svona myndum getur tekið marga mánuði og maður þarf bara að sýna þolinmæði og venjulega kemur það sem maður vill til manns eins og með allt annað. Ég reyni að vanda mig og sýna mínar bestu hliðar þegar ég er að vinna að verkefnum.“

Ljósmynd úr seríu um „underground tattoo“ menningu á Íslandi.
Ljósmynd úr seríu um „underground tattoo“ menningu á Íslandi.

Er mikið um heimildaljósmyndun á Íslandi?
„Það er lítið um það. Mjög fáir eru að vinna að því að skoða samfélagsleg vandamál og falinn raunveruleika. Það er fátækt hérna, dóp og byssur. Þetta er alveg ógnvekjandi raunveruleiki og þess vegna er mikilvægt að vita af tilvist þessa heims. Þetta er áhugavert hér á landi því það er enginn að vinna þessa heimildavinnu hérna heima og ef hún er unnin þá er hún oft rosalega ritskoðuð. Ég er ekki að vinna fyrir neinn, ég er bara að vinna fyrir sjálfan mig og það er enginn sem ritskoðar mig og ég get bara gert það sem mér sýnist.

Að sögn Þórsteins eru mjög fáir eru að vinna að því að skoða samfélagsleg vandamál og falinn raunveruleika
Að sögn Þórsteins eru mjög fáir að vinna að því að skoða samfélagsleg vandamál og falinn raunveruleika

Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652