Aðferðin sem þróuð var af verkfræðingi hjá Google er talin leika stórt hlutverk í velgengni fyrirtækisins, og hafa mörg nútímaleg fyrirtæki tileinkað sér þessa aðferð.
„Hjá fyrirtækjum eins og Google eru gríðarlegar kröfur gerðar til starfsfólks um árangur sem getur vakið upp kvíða, efasemdir, ákveðið stjórnleysi og streitu. Við þær aðstæður dregur smám saman úr færni starfsfólks til að standa sig vel og var Google aðferðin hönnuð til að sporna gegn þeirri þróun með því að beina athyglinni meðal annars að núvitund,“ segir dr. Þórður Víkingur Friðgeirsson, verkfræðingur og leiðbeinandi á námskeiðinu Mindful Leadership. Hann er jafnframt einn helsti sérfræðingur landsins í verkefnastjórnun og ákvörðunarfræðum. Námskeiðið kennir hann ásamt Ásdísi Olsen sem er viðurkenndur kennari á sviði núvitundar, eða Mindfulness, og hefur sérhæft sig í núvitund fyrir stjórnendur og innleiðingu á vinnustaði. Mindful Leadership miðar að aukinni hæfni til að halda einbeitingu og skapa rými til forystu í flóknu og krefjandi starfsumhverfi nútímans. Mörg af öflugustu fyrirtækjum heims og framsæknar stofnanir á borð við Google, Apple, Nike, General Mills, bandaríska herinn, dönsku ríkisstjórnina og Harvard Business School hafa tekið Mindful Leadership í þjónustu sína með árangri sem eftir er tekið um allan heim.
„Við munum ekki stjórna fyrirtækjum framtíðarinnar með hugmyndafræði fortíðarinnar. Mörg nútímaleg fyrirtæki, og ekki síst þau sem við höfum sem okkar fyrirmyndir, hafa tileinkað sér þær viðhorfsbreytingar sem er undirstaða Google aðferðarinnar. Kröfur fara vaxandi um árangur, samkeppni er mikil og stjórnendur og leiðtogar eru settir undir meiri pressu með árangur. Þá er vinnan sífellt meira byggð upp, meiri sveigjanleiki og að geta aðlagast hratt á tímum hraða og breytinga. Meiri áhersla er því lögð á manninn velferð hans og við tölum núna kinnroðalaust um hugtök eins og hamingju, hvernig maðurinn skapar og lætur gott af sér leiða,“ segir Þórður.
Fjöldi rannsókna sýnir einstakan ávinning af aðferðafræði Mindful Leadership sem er bæði hagnýt og áhrifarík og miðar að aukinni hugarró, einbeitingu, skýrleika, sjálfsþekkingu, sjálfsstjórn, samskiptafærni, vellíðan og sátt.
„Félagsleg færni og tilfinningagreind er ekki öllum í blóð borin en það er vel hægt að læra það og tileinka sér,“ segir Þórður. „Sem dæmi þá má leiða að því líkur að Google sé ekki endilega samsett af starfsfólki sem sé sérstaklega félagslega fært frá náttúrunnar hendi heldur hugsanalega frekar tæknisinnaðir nördar. Samt tókst Google með aðferðinni sem er kennd á námskeiðinu að ala á samkennd og er gjörsamlega ósigrandi á sínu sviði,“ segir Þórður Víkingur.
Meðal þeirra sviða sem þátttakendur mega vænta mikilla framfara við er hvernig fólk kemur fram við sjálft sig, hvernig það vinnur með streitu og stjórnar orku. „Heilt yfir vill fólk verða betri stjórnendur og það gamla viðhorf að deila og drottna víkur fyrir meiri samskiptum til að leysa verkefni fyrirtækisins. Stóra skrefið í að bæta stjórnun fyrirtækja er að starfsfólkið sé í lagi og sé sátt við sjálft sig. Þá kemur árangur í rekstri í kjölfarið.“

Unnið í samstarfi við Háskólann í Reykjavík.