Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fannst alvarlega slösuð á heimili sínu

$
0
0

Kona á sjötugsaldri er þungt haldin á gjörgæslu Landspítalans eftir að hafa dottið illa á heimili sínu í miðborg Reykjavíkur í kringum miðnætti síðastliðinn miðvikudag. Nágranni konunnar virðist hafa orðið var við óhljóð á heimili konunnar og athugað með líðan hennar í kjölfarið.

Aðkoman var slík að í fyrstu var ekki útiloka að um sakamál gæti verið að ræða. Konan var ein á heimilinu þegar slysið varð og var með áverka víðs vegar um líkamann og meðvitundarlítil.

„Við rannsókn málsins kom fljótlega í ljós að um slys væri að ræða,“ sagði Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Konan var á gjörgæsludeild í gær en ekki er vitað um líðan hennar í dag. Eins og fram kom þá var hún meðvitundarlítil þegar hún fannst.
-vg


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652