Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Heilbrigðisráðherra hefur ekki myndað sér skoðun á sjúkrahússrekstri Klíníkurinnar

$
0
0

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra hefur ekki myndað sér skoðun á því hvort hann sé fylgjandi eða mótfallinn því að einkarekna heilbrigðisfyrirtækið Klíníkin opni sjúkrahús í húsnæði sínu í Ármúlanum. Í svari frá Óttarri kemur fram að honum hafi ekki gefist tími til þess að setja sig inn í málið enn sem komið er. Heilbrigðisráðherra veit því ekki hvernig hann mun bregðast við þeirri tilraun Klíníkurinnar að opna sjúkrahúsið. „Það hefur ekki verið tekin nein afstaða til málsins,“ segir í svari Óttarrs.
Eins og komið hefur fram hefur embætti landlæknis staðfest að umsókn Klíníkurinnar um að opna fimm daga legudeilld og framkvæma meðal annars bæklunarskurðaðgerðir eins og mjaðmaskipti sem fela í sér nokkurra daga innlögn. Um er að ræða sjúkrahússþjónustu og sjúkrahússrekstur og yrði opnun deildarinnar söguleg að því leytinu til að slíkur rekstur hefur ekki verið utan ríkisrekinna sjúkrahúsa á Íslandi. Því er um ákveðna eðlisbreytingu í heilbrigðisþjónustu á Íslandi að ræða.
Í svari Óttarrs kemur fram að fyrir kosningarnar í haust hafi hann sagt að hann styðji fjölbreytt rekstrarform í heilbrigðisþjónustu: „Ég sagði í kosningabaráttunni að þótt við styddum fjölbreytt rekstrarform þá væri engin sérstök áhersla á að auka hlut einkaaðila. En við höfum ekki skipulega staðið á móti fjölbreyttu rekstrarformi, eins og verið hefur í gegnum árin og áratugina. Við vinnum að því að efla heilbrigðiskerfið yfir höfuð en það stendur ekki til að þar verið nein formbreyting eða sérstakt átak í einkarekstri.“
Út frá þessu svari Óttarrs er ómögulegt að átta sig á skoðun hans í málinu þar sem hann telur sig þurfa meiri tíma til að mynda sér hana. Óttarr svarar heldur ekki almennari spurningu Fréttatímans um hvað honum finnist um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu almennt séð.

 

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun á fyrstu vikum sínum í starfi. Hann þarf að ákveða hvort hann sé fylgjandi einkarekstri sjúkrahúsa eða ekki. Óttarr hefur ekki myndað sér skoðun á málinu að svo stöddu.
Birgir Jakobsson segir að hann muni segja heilbrigðisráðherra sína skoðun á Klíníkurmálinu.

Birgir Jakobsson landlæknir segir að hann vilji ekki tjá sig um hvaða skoðun hann hafi á opnun legudeildarinnar; hans embætti hafi staðfest að hugmynd Klíníkurinnar uppfylli faglegar kröfur. „Ég segi ekki mína skoðun eins og sakir standa, þetta er pólitísk ákvörðun alfarið. Ég er ráðgjafi ráðherra og ef hann vill heyra hvað mér finnst þá mun ég bara segja það við hann. Ég hef enn ekki hitt ráðherra. Það er ekkert óeðlilegt að hann vilji heyra hvað fólki finnst um þetta áður en hann tjáir sig. Mér finnst það vera styrkleikamerki,“ segir Birgir.
Eins og kom fram í Fréttatímanum á föstudaginn er Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, mótfallinn opnun einkarekna sjúkrahúss Klíníkurinnar þar sem opnun þess geti grafið undan starfsemi Landspítalans.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652