Sérstök deild innan sænsku lögreglunnar sem rannsakar erfið og flókin morðmál fer með rannsóknina á plastbarkamálinu þar í landi. Plastbarkamálið snýst um aðgerðir sem ítalski skurðlæknirinn Paulo Macchiarni gerði án þess að aðgerðaformið hefði verið prófað vísindalega, meðal annars á dýrum, og dóu flestir sjúklinga hans í kjölfar aðgerðanna. Deildin heitir Riksmordsgruppen og segir á heimasíðu hennar að meðlimir hennar séu „sérfræðingar í að rannsaka morð“ og að þeir séu kallaðir til vegna „sérstaklega flókinna morðrannsókna“. Til rannsóknar er hvort plastbarkaaðgerðirnar geti talist vera saknæmar og refsiverðar vegna þess að þær leiddu til dauða fólks.
Deildin hefur upp á síðkastið yfirheyrt fjölda aðila sem tengjast plastbarkamálinu. Einn af þeim heitir Jan Liska og er brjóstholtsskurðlæknir á Karolinska-sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Liska var einn af skurðlæknunum sem kom að fyrstu plastbarkaaðgerðinnni á Andemariam Beyene, Erítreumanninuum sem búsettur var á Íslandi og var fyrsti plastbarkaþeginn í heiminum. Landspítalinn sendi Andemariam til meðferðar á Karolinska vegna krabbameins í hálsi árið 2011 og er það þess vegna sem Ísland og íslenskar stofnanir tengjast málinu.
Þetta þýðir að sænska lögreglan hefur rætt við alla þrjá læknana sem gerðu aðgerðina á Andemariam Beyene en hinir tveir voru þeir Paulo Macchiarini og Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir á Landspítalanum sem var læknir Andemariams. Sænska lögreglan kom til Íslands síðastliðið sumar og ræddi við Tómas.
Tómas Guðbjartsson segir að hann geti ekki svarað því hvort hann hafi verið boðaður til yfirheyrslu vegna málsins nú. Hann segist ævinlega hafa reynt að aðstoða við rannsókn þessa máls. „Þar sem málið er enn til rannsóknar í Svíþjóð auk þess sem íslensk óháð nefnd skoðar nú málið get ég ekki tjáð mig að svo stöddu. Vert er að ítreka að ég hef aðstoðað allar þær rannsóknarnefndir sem eftir því hafa leitað og er umhugað um að leiða sannleikann í ljós.“