Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Drasl er eðlilegur hluti af heimilislífinu

$
0
0

„Það er drasl heima hjá okkur öllum, allavega stundum,“ segir Elín Oddný Sigurðardóttir, einn stofnenda facebook-hópsins „Family living – the true story“ sem stofnaður var eftir sænskri fyrirmynd. Markmið Elínar og vinkvenna hennar var að skapa vettvang fyrir fólk til þess að deila myndum af eðlilegu heimilisdrasli. Í lýsingu hópsins segir „nafnið Family living á rætur sínar að rekja til blaða helguðum innanhússhönnun sem og sjónvarpsþátta sem sýna einsleita og óraunsæja mynd af hinu fullkomna heimili.“ Markmið hópsins er því að koma með ákveðið mótvægi gegn ríkjandi hugmyndum um hið fullkomna heimili sem áberandi eru á samfélagsmiðlum. Því deila meðlimir myndum af drasli og rusli á heimilum sínum, gjarnan með skondnum texta með.

31890mynd2

„Leikurinn „grafðu“ er afar vinsæll hér á þessu heimili og mest spennandi snemma morguns.“ Mynd/facebook

Hópurinn er lokaður en öllum er velkomið að ganga í hann. „Það má alveg nota húmor á hversdagslega hluti en það eru margir hópar á samfélagsmiðlum sem eru mjög uppteknir af því að deila myndum af hinu fullkomna heimili,“ segir Elín. En hún hefur, að eigin sögn, fengið skilaboð frá einstaklingum sem hafa átt erfitt með að deila myndum inn á hópinn en liðið rosalega vel með það eftir á. Enda er, að sögn Elínar, mikilvægt að nota húmor á hversdagslega hluti og gegn hugmyndinni um að allt eigi að vera fullkomið.

Bryndís Silja Pálmadóttir
bryndis@frettatiminn.is


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652