Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Konurnar á bak við leiðakerfi Strætó

$
0
0

Valgerður Gréta Benediktsdóttir og Ragnheiður Einarsdóttir eru konurnar á bak við leiðakerfi Strætó og sjá um að auðvelda þúsundum farþega að komast leiðar sinnar á degi hverjum. Þær sjá um að skipuleggja leiðakerfi, tímatöflur og áætlanir fyrir 27 leiðir á höfuðborgarsvæðinu og annað eins á landsbyggðinni.

„Þetta er krefjandi og skemmtilegt verkefni og er allt gert í samráði við sveitarfélögin. Það flækir kerfið að vagnarnir þurfi að hittast á nokkrum stöðum svo fólk geti auðveldlega skipt um leiðir,“ útskýrir Ragnheiður sem unnið hefur hjá Strætó í tæp þrjú ár, en Valgerður hóf störf síðasta sumar.

Þeir sem nota minnst, kvarta mest

Þær segjast vera mjög gott teymi og eru nú á kafi í að vinna að næstu leiðakerfisbreytingu sem tekur gildi í maí. En miðað er við að gerðar séu breytingar á kerfinu tvisvar á ári. „Breytingar á leiðakerfinu eru síður en svo einfaldar og því er hagkvæmt að gera sem flestar breytingar í einu,“ segir Ragnheiður.

En hvernig fá þær allar þessar tímasetningar til að passa? „Þetta getur verið mjög snúið en tíminn sem er á tímatöflunum er áætlaður tími. Oftast er tíminn nokkuð réttur en umferðin er breytileg sem gerir það að verkum að stundum getur brugðið út af, sérstaklega á háannatíma,“ segir Valgerður. „Við mælum með að fólk noti appið til að sjá hvar vaginn er,“ bætir Ragnheiður við, sposk á svip.

Þær nota ýmsar tölur og gögn við skipulagningu á leiðakerfinu. Einnig fá þær ýmiskonar ábendingar frá farþegum í gegnum ábendingakerfi og taka gjarnan mið af þeim þegar unnið er að breytingum.
Fólk deilir með þeim bæði jákvæðri og neikvæðri upplifun af þjónustunni, en það er þeirra reynsla að fólkið sem kvartar mest, það notar Strætó oft lítið eða ekkert. „Það átta sig ekki allir á því að leiðakerfið hefur breyst mikið undanfarin ár, tíðnin hefur verið aukin og leiðakerfið er í sífelldri þróun.“

Kunna ekki kerfið utan að

Þær nota strætó báðar töluvert. „Við förum stundum saman á fundi í strætó. Fórum meira að segja á fund á Selfossi með strætó um daginn, enda þægilegra og skemmtilegra en að fara á bíl,“ segir Ragnheiður.
„Það er mjög gott að upplifa leiðakerfið í praxís og það hjálpar til við að betrumbæta það,“ bætir Valgerður við.

Þó þær þekki strætókerfið betur en allir aðrir geta þær ekki endilega svarað því hvenær sexan stoppar næst við Klambratún, Þær eru nefnilega ekki alveg með allar tímasetningar á öllum stoppistöðvum á hreinu, enda tæplega 900 stöðvar á höfuðborgarsvæðinu.

Aðspurðar segja þær vini og vandamenn lítið stóla á þær hvað tímatöfluna varðar en það vekur þó yfirleitt athygli þegar þær segja hvað þær starfa við. „Þegar ég er að spjalla við fólk, til dæmis í partíum, þá hefur það alltaf einhverja skoðun. Fólk getur alltaf sagt eitthvað um strætó.“ Valgerður tekur undir þetta. „Þetta skapar oft skemmtilegar umræður þar sem maður kemur.“

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652