Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fríköfun: Að yfirstíga óttann er mikilvægast

$
0
0

„Það er ákveðið ástand sem maður kemst í við fríköfun sem er heillandi. Þetta er eins og með öll önnur öfgasport þá snýst þetta fyrst og fremst um að skora á sjálfan sig“ segir Sigríður Lárusdóttir sem prófaði fyrst að kafa í sólarferð á Krít fyrir tíu árum. Eftir að hafa upplifað dýpið ákvað hún að læra köfun og síðan hefur hún hægt og rólega skipt um starfsvettang og starfar í dag sem köfunarleiðsögumaður. Ástríða hennar er þó fyrst og fremst fríköfun. „Ég hef alla tíð heillast af vatni og sem krakki var ég stöðugt að sulla í vatni. Mig langaði alltaf til að læra að kafa en svo gleymdist það á leiðinni í gegnum lífið og ég var komin á gamalsaldur þegar ég prófaði þetta fyrst.“

32079 Sigridur 00466

 

 

„Eftir að ég kláraði kafaranámskeiðið skildi ég við manninn minn og þá fór ég út í þetta af fullum krafti. Ég skráði mig í Sportkafarafélagið og bætti við mig helling af viðbótarþekkingu og næsta skref er að fara til Möltu og læra að verða köfunarkennari því mig langar ekki til að vinna við neitt annað,“ segir Sigríður. Í Sportkafarafélaginu kynntist hún Birgi Skúlasyni en hann er eini maðurinn á Íslandi sem kennir og keppir í fríköfun. Sigríður heillaðist algjörlega af sportinu.

32079 Sigridur 00489
„Fríköfun snýst um að kafa án nokkurs búnaðar og hefur auðvitað verið stunduð alla tíð, án þess að kallast fríköfun. Þetta er frekar ungt sport en það er keppt í því út um allan heim, bæði í laugum og sjó, og þá er annaðhvort keppt í að kafa djúpt á einum andardrætti eða í tímalengd á kafi. Þegar það er keppt í sjó þá er það gert á stöðum þar sem eru náttúrulega djúpar holur, svokallaðar blue holes, ein sú þekktasta og þar sem keppt er á hverju ári er við Egyptaland,“ segir Sigríður sem sjálf hefur lengst verið á kafi í 5,17 mínútur og komist á 33,3 metra dýpi en það var í sjónum við Tenerife. „Það er aðeins erfiðara að kafa á Íslandi því það er svo kalt. Ég hef lent í því að vera með fólki í Silfru sem hefur kafað niður á 60 metra dýpi úti en kemst varla niður í Silfru vegna kulda. Það eru mjög harðar aðstæður hér á landi,“ segir Sigríður sem ferðast mikið um landið með félaginu. Þau fríkafa mikið í ferskvötnum auk þess að fara í sjóinn við strendur Íslands. Síðasta sumar köfuðu þau í þrjá daga við Breiðafjarðareyjarnar sem Sigríður segir hafa verið stórkostlegt ævintýri.

32079 Sigridur 00475 _DSC4070

„Það er nauðsynlegt að undirbúa sig vel áður en farið er á kaf, fyrst og fremst með slökun og hugleiðslu til að reyna að spara alla orku. Þegar þú ert svona lengi ofan í á þetta miklu dýpi þá hægir á hjartslættinum og allri líkamsstarfsemi. Blóðið byrjar að dragast úr útlimunum og inn í kjarnann til að hlífa líffærunum og allra síðast rennur mest allt blóð til höfuðsins en það gerist ekki nema eftir langan tíma á kafi. Púlsinn hægist svo mikið að hann getur farið niður í 25 slög svo það er mjög mikilvægt við þessar aðstæður að panikka ekki. Maður þarf að vera ofboðslega þjálfaður í hugsun og hreyfingum og um það snýst þjálfunin. Að yfirstíga óttann er mikilvægast, að geta stjórnað huganum þegar aðstæður valda ótta. Það er heilmikið nám að læra að hlusta á líkamann og vita sín mörk.“

32079 Sigridur 00496
„Hver og einn hefur sínar forsendur til að stunda köfun en fyrir mér snýst þetta um að gera eitthvað sem ég er ofsalega hrædd við. Það fylgir þessu rosaleg hugarstjórn og ég finn hvað ég er miklu betri í því að takast á við erfiða hluti í lífinu eftir að ég byrjaði í þessu,“ segir Sigríður sem stefnir á að gera lítið annað en að kafa í framtíðinni. „Það er alls ekki óraunhæfur draumur því ég er nú þegar komin með réttindi til að leiðsegja og þegar ég get líka kennt verður lítið mál að ferðast um heiminn og kafa.“

 

Sigríður fríkafar ofan í Silfru
Sigríður fríkafar ofan í Silfru
32079 b
Um tíu manns mæta reglulega á æfingar hjá Fríköfunarfélaginu sem kafar bæði í ferskvatni og sjó. Félagarnir voru nýverið á Ítalíu að æfa sig í 40 metra djúpri keppnislaug. Fjórir úr hópnum náðu að kafa niður á botn laugarinnar á einum andardrætti þar sem þrýstingur er fjórfaldur miðaða við yfirborðið og hefur gríðarleg áhrif á líkamann. Í sumar verður alþjóðlega köfunarmótið Nordic open haldið á Íslandi í fyrsta sinn.
Æfingalaugin á Ítalíu er 40 metra djúp.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652