Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Heimsborgin Reykjavík: Samfélagið þéttara

$
0
0

„Ég vissi ekkert um Ísland en bæði vinnan og landið virtust vera ævintýri. Ég hafði ekki lært mikið um Ísland í skóla, en ég vissi að hér væri kalt og lítið af fólki og svo vissi ég mikið um Skaftafell,“ segir Mike Walker frá Washington fylki í Bandaríkjunum. Mike kom fyrst til Íslands fyrir þremur árum til þess að vinna sem leiðsögumaður í Skaftafelli. Í upphafi bjó hann ekki á landinu allt árið en nú hefur hann komið sér vel fyrir í Skaftafelli og Reykjavík.

„Ég hitti íslenskan mann þegar ég var að vinna í Austur-Asíu sem benti mér á vinnu á Íslandi sem leiðsögumaður og mælti með mér. Ég kom hingað þar af leiðandi á vinnu-vísa.“ Mike dvelur í Skaftafelli yfir sumarið og á veturna er hann þar helming tímans. Þegar hann er ekki í Skaftafelli fer hann til Reykjavíkur þar sem kærastan hans býr, en hún er íslensk og þau skötuhjú kynntust í Skaftafelli.

„Ísland er mjög ólíkt Bandaríkjunum. Það er ákveðin tilfinning fyrir þéttara samfélagi, kannski er það Skaftafell en mér líður eins og samfélagið hér sé samrýmdara.“ Mike stefnir á að vera á Íslandi áfram, enda búinn að koma sér vel fyrir og kominn með landvistarleyfi í lengri tíma.

Yfir fimmtungur fólks á aldrinum 26 til 34 ára í Reykjavík er með erlent ríkisfang. Í kringum þrítugt, frá 29 til 31 árs, fer hlutfallið yfir fjórðung. Hagstofan birtir ekki upplýsingar um skiptingu erlendra ríkisborgara eftir aldri og hverfum í Reykjavík, en af heildartölunum má sjá að innflytjendur skiptast ólíkt eftir hverfum. Flestir búa í efra Breiðholti, 27,5 prósent íbúanna, og næstflestir búa miðsvæðis. Ef við gerum ráð fyrir að unga fólkið skiptist eins má reikna með að yfir 40 prósent ungs fólks um þrítugt í miðbænum
og næstu hverfum sé með erlent ríkisfang, ekki annar hver íbúi en nærri því.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652