„Mér fannst Ísland spennandi því það er ekki of langt frá Sardiníu en samt svo allt öðruvísi. Ég kom hingað fyrst sem skiptinemi þegar ég var sautján ára, bjó á Seltjarnarnesi og var í Kvennó í eitt ár. Og þá ákvað ég að koma hingað aftur eftir menntaskóla og taka háskólanámið hér, segir Alice Demurtas sem flutti hingað frá Sardiníu fyrir fjórum árum. Hún lauk námi í ensku og fjölmiðlafræði við HÍ í vor og dreymir um að verða blaðamaður, helst á Íslandi.
„Ég hef unnið sem blaðamaður á netinu fyrir erlenda miðla og hef verið í starfsnámi en nú langar mig að skrifa á íslensku og fá eitthvað borgað fyrir það. Eins og er vinn ég í bænum og þess vegna bý ég í bænum, og mig langar ekki að eiga bíl. Núna bý ég með íslensku pari nálægt Vesturbæjarlauginni. Það er rólegt hverfi en samt fínt því það er nálægt bænum. Ég elska stemninguna í miðbæ Reykjavíkur. Maður er alltaf að hitta allskonar fólk og það er svo mikið um að vera og gott framboð af menningu og mat. Ef mig langar að vera ein þá rölti ég bara út á Gróttu,“ segir Alice. Hún segir bæði vinahópinn og vinnustaðinn vera mjög fjölbreyttan. „Ætli þetta sé ekki svona 50/50 Íslendingar og útlendingar.“
Yfir fimmtungur fólks á aldrinum 26 til 34 ára í Reykjavík er með erlent ríkisfang. Í kringum þrítugt, frá 29 til 31 árs, fer hlutfallið yfir fjórðung. Hagstofan birtir ekki upplýsingar um skiptingu erlendra ríkisborgara eftir aldri og hverfum í Reykjavík, en af heildartölunum má sjá að innflytjendur skiptast ólíkt eftir hverfum. Flestir búa í efra Breiðholti, 27,5 prósent íbúanna, og næstflestir búa miðsvæðis. Ef við gerum ráð fyrir að unga fólkið skiptist eins má reikna með að yfir 40 prósent ungs fólks um þrítugt í miðbænum og næstu hverfum sé með erlent ríkisfang, ekki annar hver íbúi en nærri því.