Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Heimsborgin Reykjavík: Vill kaupa sér hús á Íslandi

$
0
0

„Ég kom hingað sem skiptinemi fyrir nokkrum árum og ætlaði bara að vera í eitt ár. En ég varð svo hrifinn af staðnum að ég er ekki enn farinn,“ segir Pierre de Lépinay sem ólst upp í París. Áður en hann flutti til Íslands bjó hann í Danmörku þar sem hann vann við ljósmyndun. „Það var alls ekki bara náttúran sem ég féll fyrir heldur líka andrúmsloftið í Reykjavík. Ég hef alltaf búið í miðbænum og leigt lítið herbergi sem mér finnst ég hafa verið mjög heppinn að finna. Það er mjög ódýrt sem þýðir að ég hef ekki þurft að vinna fullt starf og getað notað frítímann í sjálfan mig. En nú verð ég bráðum að skila herberginu og þar sem það er ekki séns að finna sama díl í Reykjavík í dag er ég að spá í að fara eitthvert annað, allavega þar til leigumarkaðurinn róast,“ segir Pierre sem dreymir þó um að setjast hér að.

„Við kærastan mín viljum safna peningum og kaupa hús einhversstaðar á Íslandi, bara til að tryggja okkur samastað hér í framtíðinni. Þetta er auðvitað stór ákvörðun og erfið fyrir okkur því við erum yfirleitt ekki með nein ákveðin plön í lífinu.“

Yfir fimmtungur fólks á aldrinum 26 til 34 ára í Reykjavík er með erlent ríkisfang. Í kringum þrítugt, frá 29 til 31 árs, fer hlutfallið yfir fjórðung. Hagstofan birtir ekki upplýsingar um skiptingu erlendra ríkisborgara eftir aldri og hverfum í Reykjavík, en af heildartölunum má sjá að innflytjendur skiptast ólíkt eftir hverfum. Flestir búa í efra Breiðholti, 27,5 prósent íbúanna, og næstflestir búa miðsvæðis. Ef við gerum ráð fyrir að unga fólkið skiptist eins má reikna með að yfir 40 prósent ungs fólks um þrítugt í miðbænum og næstu hverfum sé með erlent ríkisfang, ekki annar hver íbúi en nærri því.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652