Það er óhætt að segja að piparlakkrísæði hafi heltekið Íslendinga snemma á síðasta ári, en þá kom á markað hver sælgætis- og ístegundin á fætur annarri sem innihélt piparlakkrís í einhverri mynd. Piparhúðað Nóakropp, Piparfylltar lakkrísreimar og Tyrkisk Peber poppkorn var líklega það sem sló einna mest í gegn. Vinsældirnar voru slíkar að framleiðslufyrirtækin náðu ekki að anna eftirspurn og lakkrísunnendur komu ítrekað af tómum hillum í stórmörkuðum. Þá dúkkuðu upp allskonar spennandi köku- og mataruppskriftir með pipardufti og lakkrís. Ég meina, hver hefði látið sér detta í hug lax með pipardufti fyrir nokkrum árum? Eflaust fáir.
En þegar piparlakkrísæðið virtist vera á undanhaldi þá kemur önnur bylgja nýrra lakkrísafurða sem æsir landann á nýjan leik.
Lakkrísskyr frá KEA er til að mynda að gera allt vitlaust þessa dagana og slegist er um dollurnar í mjólkurkælum landsins. Sumir vilja meina að bragðið sé nálægt því sem var af gamla góða Skólajógúrtinu með lakkrísbragði, sem margir muna eftir. Þá er Góa að hefja framleiðslu á páskaeggjum með Piparfylltum lakkrís, en fyrirtækið var með kosningu á facebook-síðu sinni þar sem almenningur gat kosið hvernig egg hann vildi. Og hlaut lakkríseggið afgerandi kosningu. Sem kom ekki á óvart.
Piparmöndlur frá H-berg eru einnig nýjar á markaðnum og flestir sem hafa smakkað þann unað láta sér ekki einn poka nægja.
Það er því óhætt að segja að vinsældir lakkríss og pipardufts séu svo sannarlega ekki á undanhaldi, þó einhverjum hafi þótt nóg um á tímabili, þegar allt varð að vera piparhúðað. En allt er gott í hófi – líka lakkrís.