Arðgreiðslur einkarekna lækningafyrirtækisins Stoðkerfa ehf. í Orkuhúsinu á Suðurlandsbraut nema samtals 327 milljónum króna á árunum 2008 til 2015. Fyrirtækið er í eigu tuttugu lækna, aðallega bæklunarlækna, og sérhæfir sig í bæklunarskurðaðgerðum sem ekki krefjast innlagnar á legudeild yfir nótt eða lengri tíma. Arðgreiðsla til hvers læknis – allir eiga 5 prósent í fyrirtækinu – yfir umrætt tímabil er því rúmlega sextán milljónir króna eða um tvær milljónir á ári. Á sama tímabili hefur hagnaður Stoðkerfa ehf. numið 348 milljónum. Stór hluti hagnaðarins er því tekinn út sem arður. Þjónusta Stoðkerfa ehf. er því arðsöm og skilar hagnaði og dálitlum arði til hvers hluthafa ár eftir ár.
Arðgreiðslur af ríkisfjármagnaðri þjónustu
Þjónusta Stoðkerfa ehf. er að stærstu leyti kostuð af samningum sem læknar stofunnar eru með við Sjúkratryggingar Íslands og þar með íslenska ríkið. Þess konar aðgerðir sem Stoðkerfi ehf. gera voru áður gerðar á Landspítalanum og tekur fyrirtækið, sem er stærsta einkarekna bæklunarskurðaðgerðafyrirtæki landsins, því við fólki sem ellegar hefði á sínum tíma þurft að leita til Landspítalans. Fyrirtækið hefur verið starfandi í 20 ár og gerir um 4500 aðgerðir á ári, mest krossbandaaðgerðir og handa- og fótaaðgerðir ýmis konar.
Engar reglur gilda um það á Íslandi hversu mikinn arð einkarekin heilbrigðisfyrirtæki, sem fjármögnuð eru með skattfé, mega greiða út sem arð og sýnir rekstrarsaga Stoðkerfa ehf. að rekstur slíkra fyrirtækja getur verið góður og arðbær. Arðgreiðslur út úr einkareknum heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu eru hins vegar bannaðar samkvæmt ákvörðun sem Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra tók á síðasta kjörtímabili.
Í Svíþjóð hefur síðastliðin ár farið fram mikil umræða um það hvort setja eigi reglur á arðgreiðslur út úr einkareknum heilbrigðisfyrirtækjum og skólum sem fjármagnaðir eru með skattfél. Engin niðurstaða er komin um það og er alls ekki víst að slíkt þak verði sett á þessa starfsemi. Sambærileg umræða hefur ekki farið fram á Íslandi nema um einkareknu heilsugæslustöðvarnar.
Ólíkt starfsemi Klíníkurinnar
Fyrirtækið Stoðkerfi ehf. gerir ekki þess konar bæklunarskurðaðgerðir sem einkafyrirtækið Klíníkin vill nú fá samninga við Sjúkratryggingar Íslands, og þar með ríkið, til að gera. Þar er meðal annars um að ræða aðgerðir eins og mjaðmaskiptaaðgerðir sem krefjast innlagnar á legudeild og þar með veitingu sjúkrahúsþjónustu sem fyrirtæki eins og Stoðkerfi ehf. veita ekki. Því má segja að um eðlisólíka starfsemi sé að ræða þar sem þjónusta Stoðkerfa er ekki sjúkrahúsþjónusta.
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra þarf að taka ákvörðun um hvort hann telji að Sjúkratryggingar Íslands eigi að gera samning við Klíníkina um að ríkið greiði fyrir aðgerðir á sjúkratryggðum einstaklingum hjá Klíníkinni. Óttarr liggur enn undir feldi og ræður ráðum sínum í málinu. Birgir Jakobsson landlæknir segir aðspurður að embætti hans vinni að því að taka saman upplýsingar um hver biðtíminn er nú eftir einstaka aðgerðum í heilbrigðiskerfinu og hver árangur af biðlistaátakinu í heilbrigðiskerfinu er. Ráðist var í slíkt átak til að reyna að stytta biðtíma eftir aðgerðum en forsvarsmenn Klíníkurinnar hafa meðal annars sagt að með opnun legudeildar muni biðtími eftir bæklunarskurðaðgerðum sem krefjast innlagnar minnka. Birgir segir að þar til niðurstaða úr þeirri skoðun liggi fyrir, og þar til hann hefur rætt málið við ráðherra heilbrigðismála, vilji hann ekki tjá sig um Klíníkurmálið.
Hvað vill Óttar?
Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, segir í samtali við Fréttatímann, aðspurður um hvaða ráðleggingar stofnunin veiti heilbrigðisráðuneytinu í málinu, að hann hafi sínar skoðanir á málinu sem hann kjósi að halda fyrir sig: „SÍ hefur sínar skoðanir á málinu, heldur betur. Við bendum að sjálfsögðu á þau sjónarmið sem við teljum að taka þurfi tillit til í málinu. […] Ég hef ekkert frekar um málið að segja í raun fyrr en ráðherra hefur samband og segir hvað hann vill, “ segir Steingrímur Ari en heilbrigðisráðherra hefur bæði fundað með SÍ, Embætti landlæknis, Klíníkinni og fulltrúum frá Landspítala-háskólasjúkrahúsi um málið. Almennt um stöðuna í málinu segir Steingrímur Ari: „Það eru læknar sem starfa á Klíníkinni sem eru með samninga við okkur. Ráðherra [Óttarr Proppé] er með málið til skoðunar og hann hefur bent á þessa staðreynd og hann hefur jafnframt sagt að annað væri ekki á dagskrá en að byggja á gildandi samningi við sjálfstætt starfandi lækna. Lengra er málið ekki komið.“
Erfitt er að skilja þessi orð Steingríms með öðrum hætti en svo að hann meti afstöðu Óttarrs í málinu sem svo að hann muni samþykkja að Sjúkratryggingar Íslands geri umræddar aðgerðir á Klíníkinni. Á einum stað í samtalinu við Fréttatímann segir Steingrímur Ari: „Skoðun Sjúkratrygginga er ekkert annað en skoðun ráðherra.“
Óttar Proppé heilbrigðisráðherra segir í svari sínu við orðum Steingríms Ara að læknar á Klíníkinni séu hluti af þeim sérgreinalæknum sem eru með rammasamning við Sjúkratryggingar Íslands um að vinna tiltekin verk. Hann svarar engu um hvort þessi orð Steingríms þýði að hann ætli sér að láta Sjúkratryggingar Íslands semja við Klíníkina. Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi á mánudaginn gaf Óttarr ekki upp hvaða ákvörðun hann muni taka í málinu.
Sumt á heima á Landspítalanum
Í svörum starfandi forstjóra Landspítalans, Sigríðar Gunnarsdóttur, við fyrirspurn Fréttatímans um Klíníkurmálið og samanburðinn á þeim rekstri og rekstri Stoðkerfa ehf. kemur fram að spítalinn hafi ekki einhverja hugmyndafræðilega afstöðu gegn einkarekstri og að ýmsa þjónustu spítalans væri hugsanlega betra að veita utan hans. Þetta á hins vegar ekki við um þá þjónustu sem Klíníkin ætlar að veita í tengslum við opnun legudeildar sinnar. „Yrði af þessum tilteknu áformum þá mun það ekki einfalda eða létta undir með rekstri Landspítala, eins og fram er haldið, heldur þvert á móti trufla hann. Einkasjúkrahús sem sinnir einföldum liðskiptaaðgerðum myndi grafa hratt undan sérgrein sem sinnir sérhæfðum hópi sjúklinga á Landspítala. Flóknari aðgerðir og öll bráðaþjónusta þyrftu áfram að vera á Landspítala en sjúklingar sem á slíkum aðgerðum þurfa að halda myndu fljótt líða fyrir það að bæklunarsérgreinin væri orðin veikari á spítalanum.“
Sigríður segir að Landspítalinn hafi tjáð heilbrigðisráðherra þetta mat forsvarsmanna spítalans. Óttarr væri því að fara gegn mati og áliti forsvarsmanna Landspítalans ef hann heimilar Klíníkinni að opna legudeildina og gera umræddar aðgerðir með kostnaðarþáttöku ríkisins.
Samningar Sjúkratrygginga um þá þjónustu sem Stoðkerfi ehf. veita hafa aftur á móti ekki verið umdeildir í gegnum árin. Árið 2015 sagði Kristján Þór Júlíusson, þáverandi heilbrigðisráðherra, til dæmis í samtali við Stundina að almenn ánægja væri með samvinnuna við fyrirtækið. „SÍ annast kaup á heilbrigðisþjónustu og hefur stofnunin m.a. það hlutverk að skilgreina þjónustuna sem keypt er og að verðleggja hana, líkt og gert er í samningum SÍ og þjónustuveitenda. Samkvæmt þeim upplýsingum sem velferðarráðuneytið hefur frá SÍ benda athuganir stofnunarinnar til þess að þjónustan sem hér um ræðir [þjónusta Stoðkerfa ehf.] sé bæði góð og hagkvæm fyrir sjúklinga og fyrir sjúkratryggingar.“
Út frá því sem Sigríður Gunnarsdóttir segir þá er sú hætta hins vegar fyrir hendi að sömu forsendur eigi ekki við um starfsemi Klíníkurinnar og Stoðkerfa og að opnun sjúkrahúss með kostnaðarþáttöku íslenska ríkisins myndi grafa undan starfsemi Landspítalans en þetta hefur ekki gerst í tilfelli Stoðkerfa ehf. miðað við hvernig ráðherra talaði um það fyrirtæki.
Aukaefni:
Hagnaður og arðgreiðslur Stoðkerfa ehf. frá 2008 til 2015
Hagnaður Arður
2015 46 60
2014 46 40
2013 42 40
2012 40 43
2011 32 43
2010 54 35
2009 46 42
2008 42 24
Samtals 348 327
*Hluthafar fyrirtækisins eru 20 talsins, aðallega bæklunarlæknar
29021 Ásdís Halla
Skilgreining heilbrigðisráðuneytisins á þjónustu Klíníkurinnar sem þjónustu læknastofu en ekki sjúkrahúss breytir miklu ef marka má orð Steingríms Ara Arasonar, forstjóra Sjúkratrygginga. Þá má líta á starfsemina eins og hvern annan einkarekstur hjá sérfræðilæknum. Á myndinni sjást Ásdís Halla Bragadóttir og Ásta Þórarinsdóttir, stofnendur Klíníkurinnar.