Meðal þeirra sem skemmta eru Baggalútur, Gunnar Þórðarson, Magga Stína, Bubbi Morthens og Ellen Kristjánsdóttir. Einnig kemur fram hundrað kvenna kór undir stjórn Margréti Pálmadóttur og syngur Brennið þið vitar svo húsið hristist.
Á tónleikunum leikur hljómsveit Eyþórs Gunnarssonar undir. Ásamt Eyþóri spilar Guðmundur Pétursson á gítar, Andri Ólafsson á bassa og Einar Scheving á trommur. Ragnheiður Gröndal og Egill Olafsson munu syngja með hljómsveitinni og líka Arnljótur Sigurðsson úr Ojba Rasta og Þorsteinn Einarsson úr Hjálmum, Svavar Knútur og Pétur Ben og kvennahljómsveitin Tripola.
Auk þessara munu skáldin Einar Már Guðmundsson og Linda Vilhjálmsdóttir lesa ljóð undir trylltum djassi.
Húsið opnar klukkan 15 og verður boðið upp á léttar veitingar í anddyrinu. Tónleikarnir hefjast klukkan 16. Allir eru velkomnir, stofnfélagar Frjálsrar fjölmiðlunar og þau sem vilja styðja frjálsa og óháða blaðamennsku á Íslandi.