„Kuldinn er ekkert nema tæki til að örva innri kerfi líkamans,“ segir Þór Guðnason en hann hefur undanfarið ár einbeitt sér að því að styrkja sig andlega og líkamlega með hjálp kulda og hinnar svokölluðu Wim Hof aðferðar.
Í rúmt ár hefur Þór byrjað hvern einasta dag á ískaldri sturtu auk þess að baða sig upp úr jökulköldum vötnum og ganga á fjöll í frosti á stuttbuxunum einum. „Ég hef alltaf haft áhuga á því að efla líkamlega getu mína og opna á hæfileika sem við höfum innra með okkur en kunnum ekki að nýta. Nútímamaðurinn er orðinn svo mikill þægindafíkill. Við gerum ekki annað en að pakka okkur inn í bómull, fara á milli staða í bílunum okkar og sitja í stól allar okkar vökustundir. Fólk hefur ekki lengur trú á því að við getum læknað okkur sjálf. Flestir vilja fá skyndilausn í töfluformi í stað þess að taka ábyrgð á eigin heilsu og gera hluti sem styrkja okkur og efla. Wim Hof aðferðin snýst um að hafa áhrif á líðan okkar sjálf og nota kulda til að efla heilsuna.“

Wim Hof aðferðin er nefnd eftir Hollendinginum Wim Hof, betur þekktur sem Ísmaðurinn. Hof á fjölda ótrúlegra heimsmeta sem öll tengjast því að geta þolað kulda í langan tíma, oftast við mjög öfgakenndar aðstæður. Þrátt fyrir að líta ekki út eins og fitness stjarna hefur Hof klifið hæstu fjöll jarðar á skóm og stuttbuxum einum fata, klárað fimm klukkutíma maraþon við heimskautsbaug í tuttugu gráðu frosti berfættur á stuttbuxum, annað maraþon í eyðimörk án þess að drekka dropa af vatni og svo á hann met í að kafa undir ís á Norðurpólnum, í sundskýlu einum fata.

Hof hefur stundað kuldaböð til að efla heilsuna í mörg ár en í fyrsta skipti sem hann vakti athygli vísindamanna var þegar hann fór á bólakaf í risastórt klakabox í hollenskum sjónvarpsþætti. Þar sat hann í klukkustund og 53 mínútur án þess að hitastig líkamans lækkaði.
Vísindamenn við hollenska Radboud háskólann komust að þeirri niðurstöðu, sem var birt í Science Daily árið 2011, eftir heilmiklar rannsóknir, að Hof hefði algjörlega einstaka hæfileika til að hafa áhrif á eigið taugakerfi og ónæmiskerfi með hjálp hugleiðslu og öndunar. En niðurstaða þeirra var jafnfram sú að þar sem hæfileikinn hefði aðeins komið fram hjá einum einstaklingi væri ekki hægt að sanna með vissu að þetta sé almennt hægt. Hof vildi ekki una þessari niðurstöðu, að hann væri einstakur, því hann segir hvern sem er geta lært að hafa stjórn á viðbrögðum líkamans við ytri aðstæðum. Og þar með var hans næsta takmark í lífinu komið; að kenna áhugasömum að nýta aðferðir sínar. Og þannig lágu leiðir hans og Þórs, íslenska Ísmannsins, saman.

Þór er einn af nemendum Hof í dag og reyndar líka góðvinur. Sjálfur segist Þór hafa alist upp á líkamsræktarstöð og fengið áhugann á ræktun líkama og sálar með blóðinu. Hann er sonur Guðna Gunnarssonar sem kynnti rope-yoga fyrir Íslendingum og móðir hans Katý Hafsteinsdóttir vann í mörg ár við að þjálfa fegurðardrottningar. Síðastliðin fimmtán ár hefur Þór starfað sem einkaþjálfari.
„Ég hef alltaf verið í þessum heimi og byrjaði ungur að stunda jóga og fór í jógakennaranám til Indlands og lærði svo einkaþjálfun í Bandaríkjunum. Ég hef alltaf verið að leita að leiðum til að ögra sjálfum mér, hvort sem það er í gegnum jóga, snjóbrettaiðkun, fallhlífastökk, paragliding eða líkamsrækt. Mér finnst gott að fara út fyrir þægindarammana og hef alltaf fylgst með umfjöllunum um fólk með einstaka líkamlega hæfileika. Fyrir svona þremur árum fór umfjöllunin um Wim Hof að verða áberandi og ég varð forvitinn,“ segir Þór.
„Það var ekki kuldinn sem hrópaði á mig því mér hefur aldrei liðið neitt sérstaklega vel í kulda. Það höfðaði í raun meira til mín að stökkva fram af fjalli í fallhlíf en að hoppa í kalt vatn. Ég ákvað samt að prófa þetta, fyrst og fremst vegna löngunar til að vera frjáls í eigin líkama. Að þurfa ekki að vera háður því að einhver annar en ég lagi hvernig mér líður, segir Þór sem byrjaði á því að lesa bók Hof, fékk sér svo app til að læra inn á kuldastjórnun og tók svo tíu vikna námskeið á netinu. „Þetta greip mig algjörlega. Þegar ég var kominn vel á veg fann ég hvernig þetta gjörbreytti lífi mínu. Ég var greindur með ADHD fyrir nokkrum árum og var búinn að vera á lyfjum við því í tvö ár en á fyrstu vikunni á Wim Hof aðferðinni fann ég hvernig mig langaði til að hætta á lyfjunum. Ég gerði það og hef ekki upplifað þörf til að taka þau síðan. Svo var ég með áreynsluastma og samkvæmt læknisráði átti ég að taka sterapúst kvölds og morgna alla daga. En síðan ég byrjaði i þessu er ég nánast hættur að nota astmalyf.“

„Aðferðin snýst í grunninn um köld böð, öndun og staðfestu. Þú sest niður og andar á ákveðinn hátt og ofan á það bætast svo við líkamlegar æfingar og hugleiðsla. Það þarf ótrúlega staðfestu til að stíga í ískalda sturtu á morgnana, eða að hoppa fram af kletti í jökulkalt vatn,“ segir Þór sem byrjar hvern einasta dag á jógaæfingum, Wim Hof öndunaræfingum, hugleiðslu og svo ískaldri sturtu. Hann fer reglulega í kalda tankinn í líkamsræktinni þar sem hann vinnur en segir langöflugast að fara út í sjálfa náttúruna. „Við förum mikið í árnar upp í Mosfellsdal eða í gjárnar á Þingvöllum. Í köldu vatninu þrengjast æðarnar en þegar þú kemur upp úr opnast þær aftur til að líkaminn nái upp hita. Þannig þjálfar þú samdrátt og útvíkkun alveg eins og þú gerir þegar þú lyftir lóðum, nema þarna ertu að gera það í hjarta- og æðakerfinu. Líðanin eftir að hafa verið lengi í kuldanum er svo góð að jákvæðu áhrifin á líkamann fara ekkert á milli mála. Þetta er bara svo hrikalega gaman.“

„Þetta byggir upp sjálfstraust því hvað er sjálfstraust annað en að þora að standa við það sem mann langar að gera. Að æfa sig í því að stíga inn í kuldann, eða óttann, styrkir þig í því að takast á við lífið. Kuldinn herðir mann andlega og líkamlega en þetta snýst líka um að vita hver okkar eigin mörk eru. Maður byggir þolið upp hægt og rólega og passar sig að fara aldrei lengra en maður getur,“ segir Þór sem fór síðastliðið sumar í kennaranám til Hof í Hollandi og eftir það hefur hann ferðast með honum bæði um Ísland og Pólland til að styrkja líkama og sál í jökulköldum böðum og á frostköldum fjöllum. „Það er rosalega magnað að upplifa það að ganga á fjall í tíu stiga frosti í þrjá tíma á stuttbuxum. Ég hélt að ég ætti eftir að þjást eða jafnvel drepast úr kulda en með þessari tækni þá þolir maður ótrúlega hluti og kikkið er rosalegt. Þú ert í svo miklu hormónabaði að þér líður eins og þú getir sigrað heiminn.“

Heimsmetalisti Wim Hof
Hof segir tilganginn með heimsmetunum vera að vekja athygli á aðferðum sínum við að stjórna taugaviðbrögðum líkamans, þar sem allir geti lært að hafa áhrif á eigin heilsu og vellíðan.
-Hljóp eyðumerkur-maraþon í Namibíu án þess að drekka vatn
-Hefur setið lengst allra í klakabaði (án þess að líkamshitinn lækki í hans tilfelli)
-Hékk á einum fingri í 2000 metra hæð
-Kleif hluta Everest í stuttbuxum og sandölum
-Kleif Kilimanjaro í stuttbuxum
-Hefur kafað lengst allra undir ís á Norðurpólnum, aðeins í sundskýlu
-Hljóp Lapplandsmaraþoni í 20 gráðu frosti, berfættur í stuttbuxum