Greiðslumiðlunarfyrirtækið Valitor, sem er að stærstu leyti í eigu Arion banka, gjaldfærði 450 milljónir króna í ársreikning sinn árið 2014 vegna „sektra og tengda mála“ sem vörðuðu reksturinn á árunum 2002 til 2009. 220 milljónir af þessari upphæð voru sektir vegna samkeppnislagabrota á Íslandi sem áttu sér stað við uppbyggingu greiðslukortakerfis fyrirtækisins, samkvæmt ársreikningi félagsins, en ekki er skilgreint hver ástæðan er fyrir 230 milljónum króna af þessari upphæð.
Valitor stundaði umdeilanleg viðskipti erlendis í færsluhirðingu á þessum tíma og var gert að greiða sektir vegna þessa samkvæmt heimildum Fréttatímans. VISA Inetrnational fetti fingur út í starfsemi fyrirtækisins sem varð til þess að árið 2011 hætti Valitor þeim viðskiptum sem um ræðir, meðal annars færsluhirðingu fyrir fyrirtæki Jónas Reynissonar eMerchantPay sem meðal annars veitir greiðsluþjónustu fyrir fjárhættuspil á internetinu.
Um þessa stefnubreytingu í starfsemi Valitor erlendis sagði Viðar Þorkelsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, árið 2012 að ný stefna myndi leiða til minni tekna erlendis. „Meginverkefni stjórnenda félagsins á árinu 2012 hefur verið að marka nýja stefnu í færsuhirðingu erlendis og komu erlendir sérfræðingar m.a. að þeirri vinnu. Ný stefna mun tímabundið leiða til lækkunar á veltu félagsins en skapar á móti traustari grunn “
Eftir að Valitor hætti að veita þá þjónustu tók greiðslumiðlunarfyrirtækið Borgun við að minnsta hluta þeirra viðskipta og hefur séð um þau síðan. Fyrir vikið hefur Fjármálaeftirlitið nú vísað hluta þessara viðskipta til skoðunar hjá embætti héraðssaksóknara. Um er að ræða viðskipti Borgunar við 13 aðila þar sem FME telur að Borgun hafi ekki fylgt lögum um varnir gegn peningaþvætti með því kanna bakgrunn viðskiptavina sinna. FME neitar að veita upplýsingar um hvaða viðskiptavinir þetta eru.
Tvö stærstu greiðslumiðlunarfyrirtæki landsins, og tvær stærstu viðskiptabankar landsins Arion og Íslandsbanki, tengjast því umræddum viðskiptum sem VISA International og nú FME þykja vera umdeilanleg og jafnvel lögbrot. Báðir bankarnir hafa því í gegnum árin hagnast á færsluhirðingu þessara kortafyrirtækja erlendis. Þá átti Landsbankinn einnig hlut í Borgun sem var seldur með umdeildum hætti árið 2014.
Höskuldur Þór Ólafsson, bankastjóri Arion banka, var auk þess framkvæmdastjóri Valitor á árunum 2004 til ársins 2010, lungann úr tímanum sem sektargreiðsla Valitor upp á 450 milljónir snýst um. Fréttatíminn fékk ekki að ræða við Höskuld út af málinu þar sem stefna Arion banka er að bankinn svari ekki fyrir fyriræki í eigu bankans sem eru sjálfstæð.
Viðar Þorkelsson, framkvæmdastjóri Valitor, hefur ekki viljað veita Fréttatímanum viðtal um málið þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Af málinu er ljóst að bæði Valitor og Borgun hafa í gegnum árin hagnast á vafasömum kortaviðskiptum sem milliliðir og að nú er að minnsta kosti hluti þessara viðskipta kominn inn á borð til ákæruvaldsins.