Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Hvers vegna er ég hér?

$
0
0

Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is

Hver er tilgangur okkar í lífinu? Þessari stóru spurningu er vandsvarað en Fréttatíminn leitaði til lífsreynds fólks úr ólíkum áttum og spurði það hvað því fyndist hafa veitt þeim tilgang og hlutverk í lífinu. Svörin voru jafn ólík og viðmælendurnir margir en þó var skýr rauður þráður sem snerist um að afkvæmi og fjölskylda var alltaf það sem fyrst var nefnt. Óháð því hvernig lífi fólk hefur lifað og hvernig afkomendunum hefur vegnað, eru börnin það sem fólk nefnir skilyrðislaust sem það sem hefur gefið þeim hlutverk og ástæðu til að lifa.
Samhljómurinn snýst einnig um að fólk nærist á því að hafa hlutverki að gegna gagnvart öðrum og að tilheyri samfélagi, fjölskyldu eða umhverfi, vinnustað eða hverskyns hópi.

nsc_20170128
New Scientist fjallar um heilsusamlegan ávinning af því að hafa tilgang í lífinu.

Í forsíðugrein New Scientist í janúar er fjallað um fjölmargar nýjar rannsóknir á mikilvægi hlutverksins. Niðurstöður þeirra benda til að fólki finnist mikilvægast af öllu að hafa eitthvað til að lifa fyrir. Því er haldið fram að það, að hafa tilgang og hlutverk, stuðli að lengra og betra lífi. Á ensku er orðið purpose notað yfir það sem sem hér er rætt um sem tilgangur eða hlutverk. Sumir leita tilgangsins í trú, aðrir í starfi, peningum, fjölskyldu eða ævintýrum.
Þó að það hljómi hástemmt að leita að hlutverki sínu í lífinu, sýna sífellt fleiri rannsóknir að það að hafa hlutverki að gegna, hafi margvísleg jákvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Þeir sem telja sig hafa fundið hlutverk sitt og tilgang í lífinu, sofa betur, njóta kynlífs betur og lifa lengur. Hlutverk og tilgangur dregur úr líkum á hjartaáfalli og þunglyndi, það auðveldar fólki að losna undan fíkn og þeir sem þjást af sykursýki eiga auðveldara með að stjórna blóðsykri sínum. „Sá lyfjaframleiðandi sem gæti framleitt lyf sem toppar slíkan ávinning, myndi græða á tá og fingri,“ segir í greininni.

Þeir lifa lengur sem hafa tilgang
Rannsóknir á mikilvægi hlutverksins, hófust með Austurríkismanninum Viktor Frankl, sem lifði af fernar útrýmingarbúðir nasista. Hann tók eftir því að sumir meðfangar hans í búðunum voru margfalt líklegri til að lifa af en aðrir. Þeir sem höfðu ekkert að lifa fyrir, féllu fyrstir. Lífsþrekið reyndist meira meðal þeirra sem höfðu tilgang og mikilvægu hlutverki að gegna.

Í nýrri fræðigreinum um hlutverkið er það skilgreint sem stefna í lífinu, langtímamarkmið sem hverfist um megingildi einstaklingsins, það sem er honum kærast og gerir líf hans þess virði að lifa því.

Rannsóknir Patrick Hill við Washington University í St. Louis, benda til að fólk sem upplifir að það hafi mikilvægu hlutverki að gegna, virðist meira að segja þéna betur en þeir sem finna fyrir tilgangsleysi.

Margþættar rannsóknir Steven Cole við Kaliforníuháskóla í Los Angeles, hafa einnig styrkt nútímakenningar um mikilvægi og heilsufarslegan ávinning hlutverksins. Með því að einbeita þér að einhverju jákvæðu og meiru en sjálfum þér, er líklegt að þú finnir líffræðilegan ávinning. Upplifunin af því að hafa tilgang og hlutverk, hafi margþætt og jákvæð áhrif á heilastarfsemina. „Það sem þér þykir mikilvægt getur meira að segja rutt úr vegi ótta þínum gagnvart öðru,“ segir Cole.

Hill fullyrðir að jafnvel þótt upplifunin af því hafa hlutverk geti minnkað og breyst milli æviskeiða og þá sérstaklega við eftirlaunaaldur, sé hinn jákvæði ávinningur af hlutverkinu jafn mikill meðal þeirra sem eru tvítugir og sjötugir. „Með öðrum orðum, það er aldrei of seint að leita að tilgangi lífsins.“

badda

Sinn eigin herra í seiðandi sveit

Bjarnheiður Júlía Fossdal
Bóndi á Melum í Árneshreppi

Þegar Bjarnheiður Júlía er spurð að því hvað hafi gefið lífi hennar tilgang og merkingu, stendur ekki á svari.
„Mér detta auðvitað fyrst í hug börnin og barnabörnin. Þau eru það allra mikilvægasta. En þegar ég hugsa um það þá er það líka sveitin. Hún er svo friðsæl og mér hefur fundist yndislegt að geta verið sjálfs míns herra í þessu fallega umhverfi, að hafa getað haft börnin hérna hjá mér allan daginn og hafa ekki þurft að senda þau í burtu í leikskóla. Þau voru bara með manni í einu og öllu. Uppeldið á börnunum verður allt öðruvísi í svona aðstæðum. Nú eru sérfræðingarnir farnir að segja að börnin séu best geymd hjá manni, ef þau eru sem mest með manni. Ég á fimm börn og þó að þau hafi farið í skóla og svona, þá tengjast þau öll sveitinni sterkum böndum. Þau hafa öll spjarað sig vel og mér sýnist þau bara vera góðir samfélagsþegnar. Ég hefði ekki viljað annan stað til að ala mín börn upp. Fólkið í sveitinni og samheldnin hefur líka skipt mig miklu máli. Nágranni minn sem býr við hliðina á mér, hjálpaði manninum mínum að byrja að ganga og síðar stíga sín fyrstu skref í búskapnum. Maðurinn minn fór aldrei í neinn bændaskóla, hann lærði þetta allt af nágranna okkar. Svo hefur umhverfið, náttúran og fjöllin seiðandi áhrif og mér finnst þau passa okkur og vera okkar bestu og kærustu vinir.“

32353 Fjóla MagnúsdóttirEf börnin eru heilbrigð kemur hamingjan af sjálfu sér

Fjóla Magnúsdóttir í Antíkhúsinu.

„Því er fljótsvarað hvað hefur gefið lífi mínu tilgang. Ég er svo lánsöm að hafa eignast fjögur heilbrigð og greind börn. Þegar uppi er staðið þá eru það þau og barnabörnin sem ég hef lifað fyrir. Ég fékk að halda öllum mínum börnum og hef reynt að gera allt sem ég gat til að þeim liði vel. Það er fullnæging í lífinu að sjá börnin sín komast á legg, vaxa og dafna og fjarlægjast mann á eðlilegan hátt þegar þau verða sjálfbjarga. Sá sem á heilbrigða fjölskyldu getur ekki leyft sér að kvarta. Þegar börnin eru heilbrigð kemur hamingjan að sjálfu sér. Fyrir mér var mikilvægast að styrkja og styðja börnin í því sem þau vildu gera. Ég reyndi að gera það þó að ég hafi nú ekki verið efnuð. Það gaf lífi mínu tilgang.
Mér fannst þungbært að missa maka minn til 45 ára, en ég hefði ekki afborið að missa frá mér barn. Ég hef getað notið lífsins af því að allir afkomendur mínir voru heilbrigðir. Svo finnst mér það ekki lítils virði að sjá sólina koma upp á daginn, nú þegar ég er orðin 83 ára gömul. Draga frá og finna birtuna gægjast inn. Það er heldur ekki sjálfgefið að maður hafi þrek í að mæta daglega í vinnuna og standi hér og þrífi glugga við Skólavörðustíginn, komin á þennan aldur.”

 

32359 Halldór ÞórhallssonGott að vera bakhjarl og með ánægt starfsfólk

Halldór Þórhallsson
Matreiðslumaður hjá Dóra

Veitingamaðurinn Dóri sem margir þekkja úr Mjóddinni, nefnir eins og margir aðrir að börnin hans hafi gefið honum tilgang í lífinu. Hann segist lánsamur að hafa eignast tvær dætur og fjögur barnabörn. „Ég held að það sem skipti mestu máli sé að sjá börnin sín komast vel á legg og að þeim vegni vel. Það hefur gengið vel og verið mér mjög mikilvægt að koma mínum vel fyrir til framtíðar. Sennilega er það það skásta sem ég hef gert og mitt mikilvægasta hlutverk, að hjálpa þeim áfram í lífinu. Auðvitað koma upp allskonar vandamál þegar börnin eru að vaxa úr grasi, þegar þau þurfa að eignast húsnæði og verða sjálfstæð. Mér finnst gott að vita til þess að maður hafi getað verið einhverskonar bakhjarl og að hægt sé að treysta á mann.
Konan mín, Stefanía Þóra Flosadóttir, hefur verið mín stoð og stytta í tæp fjörutíu ár. Við höfum átt farsælt hjónaband og höfum rekið fyrirtækið saman. Hún hefur líka gefið mér ákveðinn tilgang. Svo hef ég verið heppinn að hafa getað unnið við það sem ég lærði, og það hefur gefið mér ákveðna fyllingu. Það hefur skipt mig gríðarlega miklu máli að hafa fólk í vinnu sem er ánægt og vita að maður geri vel við það. Ég reyni að haga mér þannig að öllum líði vel, að starfsfólk hafi gaman af því að koma í vinnuna og vera í vinnunni. Þau virðast vera glöð enda er starfsaldur hjá starfsmönnum okkar mjög langur eða um 8-13 ár.“

 

10444663_10204977457454439_3506356659533875248_nEr til fyrir maka, foreldra og bróður

Símon Ormarsson
Flugþjónn hjá Icelandair

„Fólkið í kringum mig hefur gefið mér hlutverk í lífinu. Þeir sem standa mér næst og mér líður vel með. Ég upplifi að ég hafi hlutverki að gegna gagnvart maka mínum, foreldrum mínum og bróður. Mér finnst það stórt hlutverk.
Mér hefur líka þótt mikilvægt að vera ánægður í því sem ég er að gera, því annars finnur maður fyrir tilgangsleysi. Ég hef verið svo heppinn í lífinu að hafa haft tök á að gera það sem mér finnst vera skemmtilegt. Ég hef starfað hjá Icelandair í 16 ár og þar finnst mér ég hafa fengið gott hlutverk líka. Ég fengið að taka þátt í skemmtilegum verkefnum, sem alls ekki öllum býðst á lífsleiðinni. Meðal annars hef ég fengið að fara tvisvar sinnum í heimsferðir og komið á staði sem fólk fær ekki endilega tækifæri á að heimsækja. Áður starfaði ég hjá Vidal Sassoon sem gaf mér kost á að búa í Þýskalandi og kynnast þar mörgu spennandi. Þetta eru allt hlutir sem ég er þakklátur fyrir og hafa veitt mér þá tilfinningu að hafa einhvern tilgang.“

32350 Erna Indriðadóttir

Með þroskanum verður fólkið mikilvægara 

Erna Indriðadóttir
Framkvæmdastjóri Lifðu núna

„Tilgangur lífsins er mér hulinn, eins og flestum öðrum mönnum, en fyrir mér er kærleikurinn það afl sem gerir lífið gott og þess virði að lifa því. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. Þegar árin færast yfir þá sér maður að margt sem maður hélt að væri svo mikilvægt í lífinu þegar maður var yngri, er það í raun og veru ekki þegar upp er staðið. Það er vissulega skemmtilegt að hafa haft tækifæri til að mennta sig, gera það sem hugurinn stendur til og taka þátt í samfélaginu með góðu fólki. Það eru beinlínis forréttindi og ég er svo lánsöm að hafa notið þess.
En þegar ævin líður finnst mér fjölskyldan og vinirnir verða mikilvægari og mikilvægari, eða ég skynja það kannski bara betur með meiri þroska. Barnabörnin og velferð þeirra skipta mig miklu máli. Það skiptast auðvitað á skin og skúrir í lífinu. Ekkert er þungbærara en sorgir og áföll sem tengjast fjölskyldunni og börnunum manns. Að sama skapi er hamingjan mikil þegar vel gengur hjá öllum. Það er líka mjög dýrmætt að eiga góða vini, sem aldrei bregðast, sama hvað á dynur. Svo er það stöðug áskorun að reyna að verða betri manneskja, með kærleikann að leiðarljósi. Maður gerir eins vel og maður getur, en það má sjá það í heiminum í dag, hvað þetta gengur erfiðlega hjá mörgum.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652