„Ég hef mikið verið spurð um framtíð fjölskylduráðgjafarinnar eftir að það fór að fréttast að ég væri að láta af störfum en hef ekki getað svarað því þar sem engin svör er að fá frá yfirmönnum. Ég skrifaði bréf til framkvæmdastjórnar og bað um svör um hvort það stæði til að leggja fjölskylduráðgjöfina niður, ég fékk eitt svar, þar sem stóð, „takk fyrir bréfið.“ Ég leyfi mér samt að vona að það þessi þjónusta haldi áfram,“ segir Ásta Pétursdóttir fjölskyldumeðferðarfræðingur. Hún segir að fjölskylduráðgjöfinni sé smám saman skipt út fyrir sálfræðiþjónustu, það hafi verið ráðinn yfirsálfræðingur sem hafi verið settur yfir fjölskylduráðgjöfina. „Það var afar sérstakt því nálgunin er gerólík. Þetta lítur út eins og bæta eigi þjónustu við einn hóp en draga úr þjónustu við annan. Það var mikið tilhlökkunarefni að fá sálfræðiþjónustu á stöðina en það kemur ekki í staðinn fyrir þessa þjónustu.“
Karólína Stefánsdóttir félagsráðgjafi var í forsvari fyrir þjónustuna sem yfirfjölskylduráðgjafi frá upphafi, ásamt Hjálmari Freysteinssyni yfirlækni. Hún segir að ljósmæður, hjúkrunarfræðingar, læknar, sálfræðingar og félagsráðgjafar hafi komið að því að móta starfsemina frá upphafi og áherslan hafi verið á gagnkvæma virðingu milli ólíkra fagstétta. Áherslan hafi verið á tengslamyndun í frumbernsku og gripið hafði verið inn í fyrr en ella ef bera fór á fæðingarþunglyndi. Starfið hafi þó verið á breiðum grunni og í raun tekið til vandamála sem koma upp í fjölskyldum grunn- og leikskólabarna. Einstæðir foreldrar hafi samt verið í forgrunni.

Karólína lét hinsvegar af störfum fyrir tæpu ári vegna veikinda. Ásta Pétursdóttir tók þá við sem staðgengill hennar en hún starfaði áður við tengslamyndun hjá fjölskylduráðgjöfinni. Auglýsa átti stöðuna fyrir áramót en það var ekki gert. „Þetta byrjaði allt með nýjum yfirlækni sem kom árið 2013, þá fór að anda köldu gagnvart þessari þjónustu,“ segir Karólína. „Það er í raun og veru verið að leggja þetta niður hægt og hljóðlega.“
Hún segir ekkert forvarnarstarf geta komið í staðinn fyrir tengsl í frumbernsku. „Það er hræðilegt að horfa á þetta starf lagt í rúst vegna hroka og yfirgangs nokkurra karla sem vilja spara peninga með því að innleiða hugræna atferlismeðferð sem trúarbrögð og ætla nú að útrýma öllum öðrum aðferðum þótt þær hafi gefist vel..“
Í þjónustukönnun sem Háskólinn á Akureyri birti árið 2013 kom fram að 78 prósent skjólstæðinga Fjölskylduráðgjafarinnar og Nýja barnsins, höfðu haft gagn af þjónustunni. 75 prósent voru ánægðir. Óánægjan var helst með langa bið eftir viðtölum við ráðgjafa. Fjölskylduráðgjöfin hefur haft tveimur stöðugildum á að skipa en skömmu fyrir hrun var ákveðið að fjölga þeim í þrjár. Það dróst hinsvegar vegna efnahagsástandsins. Karólína bendir á að fjölskylduráðgjöfin hafi misst mikilvægan bakhjarl þegar heilsugæslan fór alfarið undir ríkið haustið 2014. Hún sé núna hluti af stórri stofnun sem heyri beint undir ráðherra. „Ég sendi ákall fyrir hönd samráðshóps um starfsemina til bæjarstjórans, landlæknis og ráðherra heilbrigðismála árið 2013 þegar það var farið að fjara undan okkur. Við fengum engin svör þá en bæjarstjórinn bað mig síðar afsökunar haustið 2014 á að ekki hefði verið brugðist við. Hann sagðist þá vilja fá að vita strax ef það væri ekki hlúð að fjölskylduráðgjöfinni. Ég hef því beðið hann um aðstoð núna.“